Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Merz vill sænska kerfið í lífeyrismálum

Read Full Article →

Þýski kanslarinn Friedrich Merz hefur lýst yfir stuðningi við umfangsmiklar breytingar á lífeyriskerfi landsins sem fela meðal annars í sér að hluti launa starfsfólks verði skyldusparnaður sem fjárfestur er á fjármálamörkuðum, að sænskri fyrirmynd, það er að segja þeim hluta sænska kerfisins sem líkist því íslenska. Samkvæmt tillögum sérfræðinganefndar myndu launþegar greiða 2% af launum sínum í miðlægt stýrðan fjárfestingarsjóð með það að markmiði að styrkja framtíðarlífeyri. Ástæðan er vaxandi halli á þýska gegnumstreymiskerfinu þar sem sífellt fleiri eftirlaunaþegar treysta á greiðslur frá færri starfandi einstaklingum. Ríkisstjórnin stefnir einnig að hækkun raunverulegs eftirlaunaaldurs og öðrum breytingum til að draga úr kostnaði kerfisins.

Share this article