Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Innflutningur á rússaþorski verði með öllu bannaður

Read Full Article →

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur kynnt 21. refsiaðgerðapakka sambandsins gegn Rússlandi. Í pakkanum er þorskur á lista yfir vörur sem verður með öllu bannað að flytja inn til Evrópusambandslanda. Í yfirlýsingu sagði von der Leyen að núverandi refsiaðgerðir væru farnar að skila sér þar sem rússneska hagkerfið væri að hægja verulega á sér. Nú yrði ESB að einbeita sér að þeim vöruútflutningi Rússlands sem hefði hve mest áhrif á utanríkisviðskipti landsins, þar á meðal sjávarafurðum í fyrsta sinn. „Aðgerðirnar nú snúa að einni af síðustu stóru atvinnugreinum Rússlands sem ekki hafa fallið undir refsiaðgerðirnar og það eru fiskveiðar. Við leggjum til verulegar takmarkanir á innflutningi á mörgum fiskafurðum og algjört bann á öðrum, þar á meðal þorski, og við munum aðlaga viðskiptahömlur fyrir Hvíta-Rússland svo að það verði ekki notað sem bakdyr fyrir rússnesk viðskipti,“ sagði von der Leyen. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB. Mynd/epa Helsta uppspretta hvítfisks fyrir ESB-lönd Rússland hefur verið helsta uppspretta hvítfisks fyrir Evrópusambandsþjóðir. Fjöldi annarra vara hafa fallið undir viðskiptaþvinganir ESB frá því Rússland réðst inn í Úkraínu í febrúar 2022. Sambandið lagði á sínum tíma til að rússneskar sjávarafurðir féllu sömuleiðis undir þvinganir en þær hafa engu að síður komist nánast óhindrað inn á Evrópumarkað. Evrópsk samtök á sviði viðskipta hafa andmælt þessum viðskiptaþvingunum og vísað til þess að Evrópusambandslönd reiða sig mikið á innflutning á mörgum tegundum af hvítfiski frá Rússlandi. Verðlagningarvefur vefritsins SeafoodSource hefur sýnt stöðugan innflutning frá Rússlandi síðustu tvö ár. Þar má sjá að flutt voru inn næstum 15.000 tonn af hvítfiski í mars 2026. Öll 27 aðildarríki Evrópusambandsins þurfa að samþykkja nýja refsiaðgerðapakkann. Rússneska sendiráðið í Hollandi hæddist að tillögunni á samfélagsmiðlum. „Við erum með betri hugmynd. Í stað þess að banna rússneskar sjávarafurðir, aðgerð sem mun jú leiða til fiskverðshækkana, gætu skriffinnar ESB einfaldlega bannað Evrópubúum að anda að sér lofti sem vindurinn ber með sér frá Rússlandi,“ skrifaði sendiráðið. ESB hefur þegar beitt ákveðin rússnesk sjávarútvegsfyrirtæki viðskiptaþvingunum og lokaði fyrir aðgang þeirra að mörkuðum í Evrópu frá því í maí 2025. Þetta eru fyrirtækin Norebo og Murman Seafood Company sem sökuð hafa verið um samstarf við skuggaflota rússneskra stjórnvalda.

Share this article