Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Vilja meina rússneskum hermönnum að fá vegabréfsáritanir

Read Full Article →

Forsætisráðherrar Eistlands, Finnlands, Lettlands, Svíþjóðar og Póllands auk leiðtoga í Þýskalandi, Litháen og Rúmeníu sendu sameiginlegt bréf til Ursulu von der Layen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og Antoni Costa, forseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins, um málið. Þeir vilja að Evrópusambandið hætti að gefa út vegabréfsáritun til Rússa sem hafa barist með rússneska hernum í Úkraínu. Litáíska ríkisútvarpið LRT greinir frá. Leiðtogarnir segja að rússneskir hermenn geti verið ógn við öryggi með aðkomu og þátttöku í glæpum og skipulagðri glæpastarfsemi, öfgahreyfingum eða fjölþáttaógnum. Þeir vilja að fleiri Evrópusambandsþjóðir styðji þetta frumkvæði þeirra og að málið verði tekið fyrir á fundi leiðtogaráðsins sem verður í næstu viku. Þessi tillaga leiðtoganna um ferðabann hefur ekki hlotið einróma hljómgrunn í Evrópusambandinu. Radosław Sikorski, utanríkisráðherra Póllands, hefur sagt að það sé jafnvel betra að leyfa rússneskum hermönnum að koma inn til Evrópu því þá sé hægt að handtaka þá og sækja til saka fyrir stríðsglæpi sem þeir frömdu í Úkraínu. Vegabréfsáritanir til Rússa hafa aukist á ný Leiðtogarnir segja í bréfi sínu til von der Layen og Costa að vegabréfsáritunum til rússneskra ríkisborgara hafi aukist á ný en þeim fækkaði mikið þegar Rússar réðust inn í Úkraínu 2022. Rússar fengu um 4 milljónir vegabréfsáritana árið 2019 en þeim hafði fækkað niður í 524.000 árið 2024. Litháen, Pólland, Tékkland, Finnland, Lettland og Eistland hafa dregið mjög úr veitingu vegabréfsáritana til Rússa. Ræðisskrifstofur Ítalíu, Frakklands og Spánar í Rússlandi gáfu þó út fleiri vegabréfsáritanir til rússneskra ríkisborgara árið 2024 en árið áður, eða um 59.000 fleiri vegabréfsáritanir árið 2024 en árið 2023. Eistar hafa nú þegar bannað 261 rússneskum ríkisborgara sem barðist með rússneska hernum í Úkraínu að koma til Eistlands. Samkvæmt LRT, er áætlað að allt að 1,5 milljón rússneskra ríkisborgara hafi barist í Úkraínu og þar af séu um 700.000 enn á víglínunni í Úkraínu.

Share this article