Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ungverjar standa í vegi fyrir refsiaðgerðum gegn Rússum

Read Full Article →

Litlar líkur eru taldar á að tuttugasti pakki refsiaðgerða Evrópusambandsins gegn Rússum verði samþykktur, þegar utanríkisráðherrar ESB-ríkjanna koma saman á fundi í Brussel í dag. Stífar viðræður fastafulltrúa aðildarríkjanna hafa staðið yfir síðustu daga, og stefnt hafði verið að því að afgreiða pakkann fyrir morgundaginn, þegar fjögur ár verða liðin frá því að Rússar hófu allsherjarinnrás sína í Úkraínu. Ungverjar standa hins vegar í vegi fyrir því að refsiaðgerðapakkinn verði samþykktur, sagði utanríkisráðherra Ungverjalands, Peter Szijjártó á samfélagsmiðlum um helgina. „Evrópusambandið stefnir að því að afgreiða tuttugasta pakka refsiaðgerða. Ungverjaland mun ekki samþykkja. Þangað til Úkraínumenn leyfa olíuflutninga til Ungverjalands og Slóvaíku, ætlum við ekki að samþykkja neitt sem er mikilvægt fyrir þá,“ sagði Szijjártó í færslu á X í gær. Leiðtogar Evrópusambandsins, Ursula von der Leyen og Antonio Costa, stefna til Kyiv á morgun og vonir höfðu staðið til að þau gætu tilkynnt um refsiaðgerðapakkann þar, en talið er ólíklegt að það náist. Úkraínumenn segja að Druzhba olíuleiðslan, sem liggur frá Rússlandi um Úkraínu, hafi skemmst í árásum Rússa nýlega og að unnið sé að viðgerðum. Evrópusambandsríkin samþykktu bann á innflutningi á rússneskum olíuvörum eftir innrásina í Úkraínu 2022, en Ungverjaland og Slóvaíka hafa verið með undanþágu frá þessu banni. Stjórnvöld í Búdapest hafa einnig lýst yfir andstöðu sinni við að afgreiða 90 milljarða evra lán til Úkraínu; lán sem leiðtogaráð Evrópusambandsins samþykkti í desember. Þrjú ríki, Ungverjaland, Slóvaíka og Tékkland samþykktu lánið með því skilyrði að þau myndu ekki bera neinn kostnað af því. Samþykki allra aðildarríkjanna þarf hins vegar til að afgreiða lánið formlega.

Share this article