Ástralska flugfélagið Qantas ætlar að hefja í fyrsta sinn beint flug milli Sydney í Ástralíu og London í október á næsta ári. Flugleiðin hefur fengið nafnið Sólarupprás. Flugtíminn milli borganna styttist um fjóra tíma og verður 19 klukkustundir. Notaðar verða nýjar langdrægar Airbus-flugvélar af gerðinni A350-1000ULR. Þær eru sérhannaðar fyrir langflug og er aukatankur með 20.000 lítra af flugvélaeldsneyti í afturenda vélarinnar sem gerir þeim kleift að fljúga í allt að 22 klukkustundir. Qantas hefur fest kaup á 12 flugvélum og í hverri þeirrer eru 238 sæti fyrir farþega. Flugfélagið hefur verið að undirbúa þessa flugleið í níu ár en miklar seinkanir hafa orðið í undirbúningnum. Farmiðasala hefst í febrúar á næsta ári svo ferðaþyrstir heimshornaflakkarar geta farið að leggja drög að fyrstu beinu flugferð sinni milli borganna tveggja.