- What: Qantas plans to launch direct flights between Sydney and London
- Impact: New long-haul flights will reduce travel time
Ástralska flugfélagið Qantas ætlar að hefja fyrstu beinu flug milli Sydney í Ástralíu og London í október á næsta ári. Flugleiðin hefur fengið nafnið Sólarupprás og með henni styttist flugtíminn milli borganna um fjórar klukkustundir og verður nú um 19 klukkustundir. Nýjar langdrægar Airbus flugvélar af gerðinni A350-1000ULR verða nýttar í þessi flug. Þær eru sérhannaðar fyrir langflug og bera auka tank af 20.000 lítra af flugvélaeldsneyti í afturenda vélarinnar sem gerir þeim kleift að fljúga bein flug í allt að 22 klukkustundir. Qantas hefur fest kaup á 12 slíkum flugvélum og hver þeirra er með 238 flugsæti um borð. Flugfélagið hefur verið að undirbúa þessa flugleið í níu ár, en miklar seinkanir hafa orðið í undirbúningsferlinu. Sala á flugmiðum hefst í febrúar á næsta ári svo ferðaþyrstir heimshornaflakkarar geta því farið að leggja drög að sinni fyrstu beinu flugferð milli borganna tveggja.