Ástralska flugfélagið Qantas Airways tilkynnti í morgun að flugfélagið hefði fallist á greiða 105 milljónir ástralskra dollara, til að komast hjá hópmálsókn viðskiptavina gegn fyrirtækinu. Viðskiptavinir félagsins hófu hópmálsókn gegn flugfélaginu vegna þess að félagið endurgreiddi ekki viðskiptavinum sínum andvirði flugmiða í flugferðir sem var aflýst í Covid-faraldrinum á árunum 2020-2022. Viðskiptavinir höfðu bæði keypti flugmiða í innanlandsflug og millilandaflug. Þegar flugfélagið aflýsti flugferðum fengu viðskiptavinir flugmiða sína endurgreidda í formi flugpunkta en ekki peninga. Það voru viðskiptavinir ósáttir með og hófu hópmálsókn gegn félaginu. Flugfélagið féllst á að greiða sáttargreiðslu til að komast hjá málsókninni en vill þó ekki viðurkenna ábyrgð í málinu. Dómstólar eiga eftir að samþykkja sáttargreiðsluna en ef hún verður samþykkt þá geta viðskiptavinir átt von á að endurgreiðslur hefjist í byrjun næsta árs.