Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Síminn, OK, Greiðslumiðlun og Öryggismiðstöðin sameinist undir Ásum

  • What: Síminn, an Icelandic telecommunications company, plans to consolidate several of its subsidiaries under a new parent company named Ásar.
  • Impact: The restructuring aims to achieve synergy, maximize performance, and facilitate further growth.
Read Full Article →

Síminn hf. áformar að sameina fyrirtæki í sinni eigu undir nýju móðurfélagi sem ber heitið Ásar. Þetta kemur fram í ársfjórðungsuppgjöri Símans sem var birt í dag. Á síðasta ársfjórðungi var tilkynnt um fyrirhuguð kaup Símans á Greiðslumiðlun Íslands, Opnum Kerfum og Öryggismiðstöð Íslands með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. „Fyrirtækin eiga öll langa sögu, byggja á stafrænum grunni og hafa áunnið sér mikið traust hvert á sínu sviði. Markmiðið er að ná umtalsverðri samlegð, hámarka árangur hvers félags og greiða leið frekari vaxtar,“ segir í uppgjörinu. Breytingarnar eru á tímamótaári en Síminn fagnar 120 ára afmæli í haust. „Það er viðeigandi að næsti kafli í sögunni hefjist á þessum tímapunkti. Þannig er unnið að breyttu skipulagi samstæðunnar og færslu fjarskipta- og miðlareksturs í nýtt dótturfélag. Það er ánægjulegt að tilkynna að hið nýja móðurfélag mun bera heitið Ásar. Orðið vísar í stefnu félagsins um vel ígrundaðan og agaðan vöxt í fleiri áttir, en ávallt út frá skýrum miðpunkti sem grundvallast á traustri og öruggri stafrænni þjónustu við fólk og fyrirtæki,“ segir í uppgjörinu. Þakkar áherslu á agaðan rekstur og kostnaðaraðhald fyrir árangur Rekstrarhagnaður Símans hf. á fjórða ársfjórðungi 2025, fyrir afskriftir og fjármagnsliði, nam tæpum tveimur milljörðum króna. Það er um 155 milljónum, eða 7,5%, minni rekstrarhagnaður en á sama tímabili árið 2024. Þó nam hagnaður á fjórða ársfjórðungi 2025 620 milljónum króna samanborið við 517 milljónir króna árið 2024. „Fjórðungurinn einkenndist af stöðugleika í rekstri eftir umrót á markaði. Því fylgdi bæði brottfall og kostnaður, en rekstrarhagnaður jókst engu að síður frá sama tíma 2024. Árangurinn má þakka áherslu á agaðan rekstur og kostnaðaraðhald, sem og vexti tekna frá nýrri tekjustraumum á borð við auglýsingar og fjártækni,“ er haft eftir Maríu Björk Einarsdóttur, forstjóra Símans, í uppgjörinu.

Share this article