Síminn hagnaðist um 171 milljón króna á fyrsta ársfjórðungi, samanborið við 188 milljóna króna tap á sama tímabili í fyrra sem litaðist af 400 milljóna króna stjórnvaldssekt. Félagið birti árshlutauppgjör eftir lokun Kauphallarinnar í dag. Á ársfjórðungnum var gjaldfærð 77 milljóna króna sekt Fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabankans í tengslum við birtingu innherjaupplýsinga vegna samkomulags um sölu á dótturfélaginu Mílu ehf. Tekjur símans námu 7,25 milljörðum króna á fjórðungnum og jukust um 1,1% milli ára. Tekjur af fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu stóðu nánast í stað á milli ára, að því er segir í afkomutilkynningu Símans. Tekjur af auglýsingamiðlun námu 607 milljónum og hækkuðu um 7,8%. Vörusala jókst um 8,4% á milli ára. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 1.362 milljónum króna og hækkaði um 90 milljónir eða 7,1% frá sama tímabili 2025. EBITDA hlutfallið er 18,8% á 1F 2026 en var 17,7% á sama tímabili 2025. „Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í samræmi við áætlanir og ber merki um þann stöðugleika sem einkennir grunnrekstur Símans,“ segir María Björk Einarsdóttir , forstjóri Símans. „Þrátt fyrir að við höfum séð fækkun viðskiptavina í fjarskiptum og sjónvarpi á haustmánuðum, voru tekjur af kjarnavörum Símans óbreyttar milli ára, en aftur á móti hækkaði kostnaðarverð seldra vara milli ára, einkum vegna vísitölutengds kostnaðar innviðabirgja og kjarasamningsbundinna launahækkana.“ Hún segir söguna sýna að tekjur af fjarskiptarekstri haldi sjaldnast í við verðbólgu. Afkomubati Símans á síðustu árum hafi því verið drifinn áfram af aukinni skilvirkni í rekstrinum. „Áframhald þar á mun byggja á aukinni nýtingu gervigreindar á öllum sviðum rekstursins.“ Síminn tilkynnti á fjórða ársfjórðungi 2025 um samkomulag um kaup á Greiðslumiðlun Íslands, Opnum Kerfum og Öryggismiðstöðinni. Í mars síðastliðnum tilkynnti félagið um undirritun skilmálaskjals um möguleg kaup Símans á útvarps- og vefmiðlum Sýnar.