Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Arnar kaupir í Símanum fyrir 12 milljónir

Read Full Article →

Arnar Þór Másson, stjórnarmaður hjá Símanum, keypti í dag hlutabréf í fjarskiptafélaginu fyrir 12,3 milljónir króna, að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Arnar, sem tók fyrst sæti í stjórn Símans árið 2021, keypti eina milljón hluta á genginu 12,25 krónur á hlut. Hann átti enga hluti í félaginu fyrir viðskipti dagsins. Arnar er sjálfstætt starfandi ráðgjafi og stjórnarmaður. Hann er í stjórn JBT Marel og Íslandshótela, auk þess að vera stjórnarformaður Spesíu og Sprota og fulltrúi í Háskólaráði Háskóla Íslands. Þetta er önnur tilkynningin um viðskipti stjórnenda Símans með hlutabréf félagsins í ár. María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans, keypti hlutabréf í Símanum fyrir 9,9 milljónir króna á genginu 14,1 króna á hlut þann 20. febrúar síðastliðinn. Kaup Arnars fylgja í kjölfar þess að Síminn birti uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung á þriðjudaginn í síðustu viku. Sjá einnig Síminn hagnast um 170 milljónir Síminn vinnur að umfangsmiklum breytingum á samstæðunni. Félagið tilkynnti á fjórða ársfjórðungi 2025 um samkomulag um kaup á Greiðslumiðlun Íslands, Opnum Kerfum og Öryggismiðstöðinni. Í mars síðastliðnum tilkynnti félagið um undirritun skilmálaskjals um kaup á útvarps- og vefmiðlum Sýnar.

Share this article