Síminn má kaupa Greiðslumiðlun Íslands, sem á greiðslulausnina Pei og innheimtufyrirtækið Motus. Heildarvirði GMÍ í viðskiptunum nemur 3,5 milljörðum króna. Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Símans á Greiðslumiðlun Íslands ehf., sem á og rekur greiðslulausnina Pei og innheimtufyrirtækið Motus. Þetta kemur fram í kauphallartilkynningu Símans. Þar segir að Samkeppniseftirlitið hafi tilkynnt félaginu í dag að stofnunin hefði lokið rannsókn á kaupunum, sem Síminn tilkynnti um 23. október síðastliðinn. Samkeppniseftirlitið taldi, með hliðsjón af fyrirliggjandi gögnum, ekki tilefni til íhlutunar vegna kaupanna og hefur þar með lokið meðferð málsins. Í samræmi við kaupsamning má reikna með að viðskiptin verði framkvæmd á næstu vikum, að öðrum skilyrðum samningsins uppfylltum. Síminn segist munu upplýsa markaðinn þegar viðskiptin hafa verið frágengin. Heildarvirði Greiðslumiðlunar Íslands í viðskiptunum nemur 3,5 milljörðum króna. Þegar Síminn tilkynnti um kaupin í október sagði félagið að kaupin myndu auka tekjur samstæðunnar á ársgrundvelli um ríflega 2,6 milljarða króna. Þá var áætlað að EBITDA myndi aukast um meira en 500 milljónir króna og að lánasafn félagsins myndi stækka um að lágmarki einn milljarð króna. Með kaupunum færist Síminn lengra inn á svið greiðslumiðlunar, fjármögnunarlausna og innheimtuþjónustu. Pei býður greiðslulausnir fyrir neytendur og fyrirtæki, en Motus er rótgróið innheimtufyrirtæki.