Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fjar­skipta­reksturinn færður í Símann Rekstur ehf.

Read Full Article →

Stjórn Símans hefur samþykkt breytingar á skipuriti félagsins sem fyrirhugað er að taki gildi 1. júlí næstkomandi. Umræddar breytingar fela m.a. í sér að fjarskipta- og miðlarekstur samstæðunnar verður færður í dótturfélagið Síminn Rekstur ehf. frá og með 1. júlí næstkomandi. „Fjarskipta- og miðlarekstur samstæðunnar verður rekinn í óbreyttri mynd í dótturfélaginu Síminn Rekstur ehf.“ Síminn tilkynnti í október sl. um að til stæði að færa fjarskipta- og miðlareksturinn í nýtt dótturfélag. Í febrúar var greint frá því að ákveðið hefði verið að samstæðunnar yrði Ásar eftir skipulagsbreytingarnar. Sjá einnig Síminn breytir nafni sam­stæðunnar „Breytingarnar eru liður í því að skapa aukið svigrúm til vaxtar og þróunar samstæðunnar. Móðurfélagið, Síminn hf., sem fyrirhugað er að muni bera heitið Ásar að undangengnum hluthafafundi, mun veita dótturfélögum skilgreinda stoðþjónustu og styðja við þróun samstæðunnar í heild,“ segir í tilkynningu Símans til Kauphallarinnar. María Björk Einarsdóttir verður áfram forstjóri móðurfélagsins og mun jafnframt gegna stöðu forstjóra Símans Rekstrar ehf. Þrjú svið munu heyra undir móðurfélagið; fjármálasvið, upplýsingatækni og mannauður & rekstur. Þrír framkvæmdastjórar munu starfa hjá móðurfélaginu. Hjörtur Þór Steindórsson mun áfram leiða fjármálasvið félagsins og Logi Karlsson stýra upplýsingatæknisviði. Ragna Margrét Norðdahl tekur við sem framkvæmdastjóri mannauðs & rekstrar. Samhliða starfi sínu sem framkvæmdastjóri upplýsingatækni hjá móðurfélaginu mun Logi Karlsson gegna starfi framkvæmdastjóra Tækniþróunar hjá Símanum Rekstri ehf. Berglind Björg Harðardóttir, Sæunn Björk Þorkelsdóttir og Birkir Ágústsson verða framkvæmdastjórar hjá Símanum Rekstri ehf. og stýra þar sömu sviðum og þau stýra í dag. Berglind verður framkvæmdastjóri einstaklingssviðs, Sæunn Björk framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs og Birkir framkvæmdastjóri miðla. „Fyrirhuguð skipulagsbreyting er einn áfangi á þeirri vegferð okkar að byggja upp öfluga og arðbæra samstæðu á sviði stafrænnar þjónustu. Með breytingunum sköpum við skýrari umgjörð utan um fjölbreyttan rekstur samstæðunnar og styðjum við áframhaldandi vöxt. Nýtt skipulag mun skapa kostnaðarhagræði í stoðþjónustu og skerpa áherslur rekstrarfélaga sem fá aukið svigrúm til að einbeita sér að vöruþróun og þjónustu við viðskiptavini,“ segir María Björk Einarsdóttir , forstjóri Símans.

Share this article