BlueBay Asset Management vakti mikla athygli þegar sjóðurinn sneri aftur inn á íslenska ríkisbréfamarkaðinn árið 2022 og keypti löng óverðtryggð ríkisbréf fyrir um 20 milljarða króna. Sjóðurinn fjárfesti í RIKB 42, sem er á gjalddaga árið 2042, og var því um skýra stöðutöku að ræða á langa enda íslenska vaxtamarkaðarins. Samhliða fjárfestingunni sendi sjóðurinn viðskiptavinum bréf þar sem þeir sögðu að Ísland gæti orðið eins konar „Sviss norðursins“. Sjóðurinn sagði aðlaðandi krónu, yfirvofandi hjöðnun á verðbólgu og bætt ríkisfjármál vera meðal ástæðna fyrir milljarða fjárfestingunni. Að sterkri krónu undanskilinni gekk sú spá ekki alveg eftir og herma heimildir Viðskiptablaðsins að BlueBay hafi að undanförnu verið reglulegur seljandi á íslenska skuldabréfamarkaðinum. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift