Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Meirapróf til að aka strumpastrætó

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 13.6.2026 | 14:05 Meirapróf til að aka strumpastrætó Rafknúnir sendibílar af nýjustu gerðum eru almennt þyngri en 3,5 tonn. Að óbreyttu þarf meirapróf til að mega aka slíkum bílum. mbl.is/Karítas Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Innviðaráðherra hefur breytt reglugerð um ökuskírteini í tvígang undanfarna mánuði án þess þó að verða við óskum Samtaka verslunar og þjónustu og Bílgreinasambandsins um að reglugerðinni verði breytt til samræmis við heimild sem kemur fram í Evróputilskipun sem hefur verið innleidd á Íslandi. Þess var óskað að reglugerð um ökuskírteini yrði breytt á þann veg að ökumönnum, með hin hefðbundnu B-réttindi, yrði heimilað að aka þyngri bílum en gildandi reglugerð kveður á um, enda sé bifreiðin að hluta til eða í heild knúin vistvænum orkugjöfum, eins og rafmagni t.d. Ástæða þessa er sú að framleiðendur ökutækja setja á þessu ári á markað rúmgóða fjölskyldubíla sem stundum eru kallaðir strumpastrætóar og sendibíla sem ganga alfarið fyrir rafmagni, eru fjórhjóladrifnir og með það stóra rafhlöðu að drægni hamlar ekki notkun. Að óbreyttu þurfa ökumenn slíkra bifreiða að vera með meirapróf þar sem almennu ökuréttindin, B-réttindin, takmarkast við 3.500 kílóa heildarþyngd ökutækja. Hinir nýju fjölskyldu- og sendibílar eru hins vegar þyngri en 3.500 kg en léttari en 4.250 kg, en samkvæmt umræddri Evróputilskipun er heimilt að miða við þá þyngd að hámarki. Fyrirspurn á Alþingi Fram er komin á Alþingi fyrirspurn Ólafs Adolfssonar alþingismanns Sjálfstæðisflokksins sem beint er til innviðaráðherra, þar sem hann spyr hvort til standi að innleiða fyrrgreinda heimild. Verði svarið jákvætt er spurt hvenær það gerist og ef svarið er neikvætt er óskað rökstuðnings fyrir því. „Stjórnvöld hafa lagt áherslu á orkuskipti í samgöngum, í stjórnarsáttmála, við vörugjaldabreytingar um síðustu áramót og í tengslum við tímabundna lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti o.fl.,“ segir Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu og Bílgreinasambandsins, í samtali við Morgunblaðið. Benedikt S. Benediktsson Segir leiða til sóunar „Að óbreyttu þarf það fjölskyldufólk sem ætlar að kaupa þessa nýju bíla að vera með meirapróf. Þá þurfa atvinnurekendur að ráða starfsfólk með meirapróf til að aka nýju sendibílunum. Það leiðir til sóunar þar sem unnt er að fara þá leið að nýta heimildina í Evróputilskipuninni og komast hjá þessu. Þar sem þetta er krafan má gera ráð fyrir að kaupendur velji frekar að kaupa bensín- eða dísilbíla, þvert á áherslur ríkisstjórnarinnar,“ segir Benedikt og þykir það skjóta skökku við, ætli stjórnvöld ekki að innleiða áðurnefnda breytingu á reglum um ökuskírteini. Undrast seinagang „Við höfum ítrekað spurt hvers vegna innviðaráðuneytið hefur ekki nýtt heimildina og breytt reglugerð um ökuskírteini. Það hefur verið gert í Noregi svo dæmi sé tekið. Samkvæmt okkar upplýsingum gáfu undirstofnanir ráðuneytisins grænt ljós á það í nóvember 2025,“ segir hann og undrast seinaganginn í málinu sem og að tækifærið hafi ekki verið nýtt þegar breytingar hafa verið gerðar á reglugerðinni, sem gerst hefur tvisvar að undanförnu eins og að framan greinir. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Franskt herskip á Akureyri Meirapróf til að aka strumpastrætó Nafnvextir einir segja lítið um húsnæðiskostnað Lagði upp í Noregi Ódýr, einföld og einstaklega gómsæt vefja Umræðan „Gekk, fekk vargr at drekka“ Þessu fer að ljúka í bili Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Elskuð, virt og dáð af fólki um allt konungsríkið“ Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Íbúðaverð hækkaði um 103% á tíu árum Klórar sér í hausnum yfir ummælum ráðherra Mest lesið Í gær Í vikunni Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Andlát: Þórdís Kristmundsdóttir Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Þremur skemmtistöðum lokað í aðgerðum lögreglu Jafn mikil verðmæti aldrei sokkið við Ísland Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Leynd yfir samskiptum aflétt með úrskurði Þremur flugferðum aflýst: Boða til nýs fundar Framburður starfsfólks: „Ég drap þau“ Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Sex flugferðum aflýst í dag Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Tilbúnir að slást í sundklefunum Óttast er að hundruð missi vinnuna Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Nýjast á mbl.is » Franskt herskip á Akureyri Meirapróf til að aka strumpastrætó Nafnvextir einir segja lítið um húsnæðiskostnað Lagði upp í Noregi Ódýr, einföld og einstaklega gómsæt vefja Umræðan „Gekk, fekk vargr at drekka“ Þessu fer að ljúka í bili Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Harðnar enn í deilum hjá Icelandair „Ég átti rosalega erfitt í skóla“ Mest lesið Í gær Í vikunni Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Andlát: Þórdís Kristmundsdóttir Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Þremur skemmtistöðum lokað í aðgerðum lögreglu Jafn mikil verðmæti aldrei sokkið við Ísland Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Leynd yfir samskiptum aflétt með úrskurði Þremur flugferðum aflýst: Boða til nýs fundar Framburður starfsfólks: „Ég drap þau“ Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Sex flugferðum aflýst í dag Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Tilbúnir að slást í sundklefunum Óttast er að hundruð missi vinnuna Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi

Share this article