- What: Landsbankinn and Monerium collaborate on stablecoin solutions
- Impact: Enables customers to send and receive stablecoins from bank accounts
Landsbankinn og Monerium hafa ákveðið að hefja samstarf um innleiðingu lausna sem gera viðskiptavinum bankans kleift að taka á móti og senda stöðugleikamyntir frá bankareikningum sínum í Landsbankanum. Samstarfið fylgir í kjölfar þess að Landsbankinn gerðist hluthafi í Qivalis, félagi sem vinnur að þróun stöðugleikamyntar í evru fyrir evrópskan fjármálamarkað. Qiuvalis er í eigu 37 leiðandi fjármálafyrirtækja frá 15 Evrópulöndum. Sjá einnig Aukin skilvirkni með nýrri tækni „Samstarfið felur í sér greiningu á því hvernig Landsbankinn getur nýtt innviði Monerium til að veita viðskiptavinum sínum aðgang að stöðugleikamyntum og annarri fjármálaþjónustu á bálkakeðjum. Meðal þeirra þátta sem verða skoðaðir eru útgáfa og innlausn evrustöðugleikamynta, gjaldeyrisskipti og greiðsluflæði inn og út úr hefðbundnum greiðslumiðlunarkerfum,“ segir í tilkynningu. Stöðugleikamyntir eru hefðbundnir gjaldmiðlar á bálkakeðjum (e. blockchain). Þær hafa í auknum mæli rutt sér til rúms í alþjóðlegri greiðslumiðlun. Flestar stöðugleikamyntir eru útgefnar í bandarískum dollar en Monerium hefur verið leiðandi í útgáfu evru og punds, til dæmis í notkun debetkorta, bæði Mastercard og Visa. Fyrirtækið var það fyrsta í Evrópu til að fá tilskilið leyfi til útgáfu stöðugleikamynta og það fyrsta til að beintengja stöðugleikamyntir við hefðbundin greiðslumiðlunarkerfi þegar það samþætti útgáfukerfi sín við SEPA greiðslumiðlunarkerfi Evrusvæðisins. EURe stöðuleikamynt Monerium er með mesta veltu evrópskra evrumynta á bálkakeðju. „Við teljum að stöðugleikamyntir muni gegna mikilvægu hlutverki í næstu kynslóð fjármálainnviða hjá bönkum. Þær gera alþjóðlega greiðslumiðlun ódýrari, hraðari og sveigjanlegri en núverandi tækni. Monerium hefur byggt upp innviði fyrir útgáfu og viðskipti með stöðugleikamyntir. Við erum spennt fyrir því að vinna með Landsbankanum og nýta okkar lausnir í þágu þeirra viðskiptavina,“ segir Gísli Kristjánsson , framkvæmdastjóri Monerium. „Við sjáum vaxandi áhuga fjármálafyrirtækja á að undirbúa sig fyrir heim þar sem stöðugleikamyntir verða stór hluti af í greiðslumiðlun og uppgjöri í stafrænni fjármálaþjónustu. Það er sérstaklega ánægjulegt að fá tækifæri til að vinna með Landsbankanum á þessu sviði,“ segir Gísli.