Landsbankinn gerðist á dögunum hluthafi í Qivalis, félags sem vinnur að þróun stöðugleikamyntar í evru fyrir evrópskan fjármálamarkað. Félagið er í eigu 37 leiðandi fjármálafyrirtækja frá 15 Evrópulöndum, en meðal annarra þátttakenda í samstarfinu eru ABN AMRO, BBVA, BNP Paribas, Nordea, Rabobank, SEB, Swedbank, Danske Bank og UniCredit. Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir að stöðugleikamynt Qivalis muni hafa ýmsa kosti í för með sér, þar á meðal hraðari greiðslur og uppgjör. Þannig verði til dæmis hægt að framkvæma greiðslur allan sólarhringinn en ekki aðeins innan ákveðins glugga eins og raunin er í dag. Þá verði hægt að tengja myntina við samninga og sleppa milliliðum, auk þess sem auðveldara verður að rekja greiðslur. „Það eru alls konar möguleikar sem við sjáum á teikniborðinu og eru að verða að veruleika. Við viljum vera í góðum hóp banka í Evrópu til að tileinka okkur tæknina og geta þá boðið viðskiptavinum upp á þessa greiðsluleið í framtíðinni,“ segir Lilja Björk. Aukinn hraði og skilvirkni gæti aukið notkun sem síðan gæti lækkað kostnað. „Allt sem eykur skilvirkni, dregur úr kostnaði og nýtir tæknina fyrir viðskiptavini, er eitthvað sem við höfum áhuga á. Tímapunkturinn er réttur, þessi markaður virðist vera að stækka. Það er meiri áhugi og meiri kraftur sem fer í þróun stöðugleikamynta og tækninnar sem þær byggja á heldur en undanfarin ár.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .