Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Vilja vera með frá upphafi

Read Full Article →

Landsbankinn gerðist á dögunum hluthafi í Qivalis, félagi sem vinnur að þróun stöðugleikamyntar í evru fyrir evrópskan fjármálamarkað. Félagið er í eigu 37 leiðandi fjármálafyrirtækja frá 15 Evrópulöndum, en meðal annarra þátttakenda í samstarfinu eru ABN AMRO, BBVA, BNP Paribas, Nordea, Rabobank, SEB, Swedbank, Danske Bank og UniCredit. Í dag er notkun stöðugleikamynta ekki mikil en talsverð umræða hefur skapast um slíkar myntir á síðustu árum. Að sögn Lilju Bjarkar Einarsdóttur, bankastjóra Landsbankans, vakti það athygli bankans þegar fréttir bárust í lok síðasta árs um áherslu á stöðugleikamynt í Bandaríkjunum og út frá því mögulega þróun stöðugleikamyntar í evru. Í kjölfarið byrjaði Landsbankinn að kynna sér málið og átti í samtali við evrópska banka, sem síðan leiddi til þess að bankinn varð hluthafi í Qivalis. Lilja Björk segir það skipta miklu máli að meðal hluthafa séu stórir bankar, með marga viðskiptavini og mikla útbreiðslu, en það auki líkurnar á að notkun myntarinnar verði algeng í Evrópu og í evruviðskiptum. „Þetta getur opnað ný tækifæri fyrir viðskiptavini og við viljum auðvitað vera tilbúin þegar þetta fer að verða algengari greiðslumiðill. Það þarf að sjálfsögðu að taka eitt skref í einu og það er gott að gera það í þetta öflugum hópi fjármálafyrirtækja.“ Tæknin hefur þróast hratt og telur Lilja Björk að aukinn skriðþungi gæti leitt til frekari notkunar á komandi árum. „Þetta er ný leið og svo á maður bara eftir að sjá hvernig greiðslumiðlun þróast. Ef þetta reynist einfalt í framkvæmd finnur vatnið sér leið, þá mun fólk nota þetta í auknum mæli. Það er akkúrat það sem við erum að gera, við erum að gera þetta einfalt fyrir viðskiptavini,“ segir Lilja Björk, en Landsbankinn vinnur nú að því að gera stöðugleikamyntir sýnilegar viðskiptavinum í appi bankans. „Maður sér ótrúlega mikla möguleika en svo skiptir alltaf máli að þetta skili einhverju til fólks, skili einhverjum þægindum, kostnaðarsparnaði eða tímasparnaði. Það er lykilatriðið.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article