Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

ESB opnar á meiri fjármagnsflutninga í bankakerfinu

Read Full Article →

Evrópskir bankar gætu fengið aukið svigrúm til að færa fjármagn milli aðildarríkja ESB og notið lægri eiginfjárkrafna vegna húsnæðislána og lána til smærri fyrirtækja. Þetta kemur fram í drögum að skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sem Financial Times hefur undir höndum. Markmiðið er að efla samkeppnishæfni evrópskra banka gagnvart bandarískum keppinautum. Í skýrslunni eru þó ekki lagðar til jafn víðtækar tilslakanir á eiginfjárkröfum og bankageirinn hefur kallað eftir. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins telur þrjú meginvandamál hamla þróun bankakerfisins. Þar er nefnt of mikla markaðsskiptingu á innri markaðinum, þörfina á að laga alþjóðlega staðla að evrópskum aðstæðum og óþarflega flókið regluverk. Sjá einnig Eigin­fjárkröfur á banka að lækka um­tals­vert Lagt er til að bankaeftirlit geti metið eiginfjár- og lausafjárkröfur á samstæðugrunni í stað þess að fjármagn sé bundið í dótturfélögum í einstökum ríkjum. Seðlabanki Evrópu hefur lengi stutt slíkar breytingar og telur að hundruð milljarða evra séu nú bundin vegna innlendra takmarkana. Bankasamstæðum yrði þannig auðveldað að ráðstafa fjármagni yfir landamæri en með þessum aðgerðum yrðu móðurfélögin jafnframt skyldug til að styðja dótturfélög þegar þörf krefur. Tillögurnar gætu þó leitt til pólitísks ágreinings milli ríkja sem hýsa höfuðstöðvar stórra banka og þeirra sem óttast að missa stjórn á fjármagni innan sinna landamæra. Markmið tillagnanna er að auka samkeppnishæfni evrópskra banka. Í skýrslunni er einnig boðuð endurskoðun á eiginfjárreglum banka, meðal annars til að kanna hvort Basel III-reglurnar, sem voru settar á eftir fjármálakreppuna, geri lán til smærri fyrirtækja og húsnæðislán óþarflega dýr.

Share this article