Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum

Read Full Article →

Kjartan Smári Höskuldsson hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri sjóðastýringafyrirtækisins Íslandssjóða, að því er kemur fram í tilkynningu á vef Íslandsbanka, móðurfélags Íslandssjóða. Kjartan Smári tók við starfinu árið 2016. Í tilkynningu er bernt á að Íslandssjóðir séu í dag eitt stærsta sjóðastýringarfyrirtæki landsins, með 387 milljarða króna í stýringu í lok síðasta árs. Talsverð umræða hefur verið í kringum Íslandssjóði í vikunni í tengslum við gengisfall hlutabréfa Oculis. Hjá tveimur opnum hlutabréfasjóðum Íslandssjóða voru eignarhlutir í Oculis stærsta einstaka eign viðkomandi sjóða. Sjá einnig Gengis­hrun Ocu­lis veldur sjóðum Ís­lands­sjóða milljarðs tapi Halldóra tekur tímabundið við Halldóra Skúladóttir tekur við stöðu framkvæmdastjóra tímabundið þar til stjórn félagsins hefur ráðið nýjan framkvæmdastjóra. Halldóra hefur gegnt stöðu forstöðumanns eignastýringar hjá Íslandssjóðum frá árinu 2017. „Hún býr yfir víðtækri reynslu af fjármálamarkaði og þekkingu á starfsemi félagsins. Áður starfaði hún sem forstöðumaður hjá Íslandsbanka og hefur alls 26 ára reynslu í greininni.“ Halldóra Skúladóttir hefur gegnt stöðu forstöðumanns eignastýringar hjá Íslandssjóðum frá árinu 2017. © Aðsend mynd (AÐSEND)

Share this article