Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Heiðar: „Þetta er allt bara vit­leysa“

Read Full Article →

Heiðar Guðjónsson, fyrrverandi forstjóri Sýnar, gefur lítið fyrir söguskýringu núverandi forstjóra félagsins, Herdísar Drafnar Fjeldsted, um hvenær rekstrarvandi fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækisins hófst. „Hvar á ég að byrja? Þetta er allt bara vitleysa,“ sagði Heiðar í nýjum hlaðvarpsþætti Chess after Dark, spurður um ummæli Herdísar. „Ég bara skil ekkert í þessu.“ „Kostuleg söguskýring“ Eins og Viðskiptablaðið fjallaði um svaraði Herdís, sem tók við sem forstjóri Sýnar í janúar 2024, nýlega gagnrýni Heiðars á ákvarðanir í rekstri félagsins og sagði að vandræði Sýnar hafi hafist í kjölfar kaupa félagsins á 365 miðlum árið 2017, þegar Heiðar var stjórnarformaður. Í hlaðvarpsþætti Chess after Dark í apríl sagði hún að Sýn hafi í kjölfar þeirra kaupa gripið til eignasölu. Auk þess hafi félagið notið góðs af „heimsfaraldurstekjum“ vegna samstarfs við Controlant en sú tekjustoð skili í dag aðeins litlu broti af því sem hún gerði á árunum 2021 og 2022. Sjá einnig Her­dís: Vand­ræði Sýnar hófust í tíð Heiðars „Mér fannst þetta alveg kostuleg söguskýring,“ sagði Heiðar. Hann benti á að hann hefði fjárfest í Sýn, sem hét þá Vodafone, árið 2013 og tekið í kjölfarið sæti í stjórn félagsins. Hann var svo stjórnarformaður fram til ársins 2019. „Ég var ekki að stýra fyrirtækinu, ég var ekki forstjóri, ég bjó ekki til áætlanir, ég sá ekki um daglegan rekstur,“ sagði Heiðar um þetta tímabil og bætti við að réttast væri að tala um þátttöku sína frá og með árinu 2019 þegar hann tók við sem forstjóri félagsins. Sjá einnig Gætu selt innviði fyrir milljarða á árinu Þekki engan sem telji viðskiptin vond Hann svaraði gagnrýni Herdísar á eignasölu í forstjóratíð sinni. Heiðar sagði Sýn hafa selt helmingshlut í færeyska símafyrirtækinu P/F 20.11.19, sem varð til við samruna Hey og Nema, árið 2021 í ljósi þess að Færeyjar sögðu upp Hoyvíkursamningnum. Hann benti á að Samherji hefði selt færeyska útgerð um svipað leyti vegna uppsagnar viðskiptasamningsins. „Við seldum símafyrirtæki sem við áttum þarna og fengum mjög fínt verð. Það verð hefði ekkert hækkað og væri ekkert hærra í dag. Við nýttum peninginn í að greiða niður skuldir.“ Sjá einnig Gengið frá innviðasölu til Digital Bridge Hvað varðar sölu Sýnar Sýn á 200 sendastöðum, eða sem nefnt hefur verið óvirkir innviðir, fyrir tæplega 7 milljarða króna til bandaríska fjárfestingafélagsins DigitalBridge árið 2021 sagði Heiðar að kaupverðið hafi samsvarað 23,5 xEBITDA af umræddum rekstri en til samanburðar hafi Sýn verið metið á liðlega 6 xEBITDA. „Ég veit ekki um neinn sem gæti talið slíkt vera vond viðskipti.“ Heiðar sagði að þegar kemur að leiguskuldbindingum vegna endurleigu á umræddum sendastöðum þá skipti mestu máli hvaða vextir séu í slíkum samningum. „Þær eru á miklu miklu hagstæðari vöxtum heldur fást á bankamarkaði. Þannig að þetta er mjög hagkvæm fjármögnun.“ Hvað varðar hlutanetstekjur (IoT) Sýnar - sem námu 1,6 milljörðum króna árið 2022 en hafa síðan dregist mikið saman og námu undir 300 milljónum króna í fyrra – sagði Heiðar að á sínum tíma hafi verið væntingar um að þessi tekjuliður myndi jafnvel fara upp í 3 milljarða króna. „Það voru eignir þarna sem tengjast þessum IoT tekjum sem nýir eigendur færðu upp - hlutabréf í Controlant og hitt og þetta. Þannig að ég get ekki séð að ég hafi verið að ofspá einu né neinu.“ Heiðar, sem var þá stærsti hluthafi Sýnar, lét af störfum sem forstjóri og seldi allan 12,7% eignarhlut sinn í félaginu fyrir 2,2 milljarða króna í júlí 2022. Hann seldi hlutinn á 64 krónur á hlut til Gavia Invest, sem er í dag stærsti hluthafi Sýnar. Ástæðan fyrir því að hann hætti störfum hjá Sýn voru heilsufarslegar en hann fékk blóðtappa í lungun. Heiðar sagði að stjórnendur félagsins hefðu á þessum tíma átt von á að gengið myndi hækka upp í 150 krónur á hlut á 2-3 árum. Hlutabréfaverð Sýnar stendur í dag í 20,8 krónum á hlut og er 67,5% lægra en gegnið í viðskiptunum þegar Heiðar seldi eignarhlut sinn. Heiðar ræddi um Sýn og ummæli Herdísar frá 58:45-1:04:15.

Share this article