Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Enski boltinn „stendur undir sér“

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 6.3.2026 | 9:10 Enski boltinn „stendur undir sér“ Stjórnendur Sýnar eru ósáttir við íhlutun Fjarskiptastofu. mbl.is/Eggert Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Sýn hélt á föstudag fjárfestakynningu í kjölfar ársuppgjörs félagsins vegna síðasta árs. Fundurinn var ágætlega sóttur og vel heppnaður. Herdís Dröfn Fjeldsted forstjóri og Eðvald Ingi Gíslason fjármálastjóri veigruðu sér ekki við að svara spurningum viðstaddra og gáfu sé góðan tíma í umræður að kynningu lokinni, sem fyrir vikið urðu á köflum líflegar og um margt áhugaverðar. Á það ekki síst við um umræðu sem spannst um enska boltann og sýningarrétt Sýnar þar að lútandi. Fram kom á fundinum að Sýn hefði ekki greitt 4 milljarða króna fyrir sýningarréttinn eins og haldið hefði verið fram, heldur hefði upphæðin verið á bilinu 3-4 milljarðar. Eðvald minntist einnig á að vitað væri út frá uppboðsferlinu að munað hefði minna en 5% á tilboðum Sýnar og Símans. Spurð hvort þeim reiknist til að sýningarrétturinn skili tekjum í takt við útlagðan kostnað segja þau svo vera, ekki síst með tilliti til afleiddra tekna (e. halo-effect). „Auglýsingatekjur aukast og það er pakkasala á fjarskiptum ef menn kaupa svoleiðis. Enski boltinn stendur undir sér, hann er viðskiptaaukandi fyrir félagið,“ sagði Eðvald. Hann sagði Sýn hafa gert ráð fyrir meira fjárflæði af sýningarréttinum en raunin varð og fóru þau Herdís ekki í grafgötur með það að þar hefði íhlutun Fjarskiptastofu sett strik í reikninginn. Herdís lagði áherslu á að mál Sýnar og Símans væru í þeim efnum ekki sambærileg. Síminn hafi á sínum tíma vöndlað enska boltann saman við fjarskipti, þannig að til þess að fá áskrift að enska boltanum þurfti viðkomandi að vera með fjarskipti hjá Símanum, þar til SKE stöðvaði það. Sýn hefði aftur á móti ætlað að veita öllum aðgang að enska boltanum, óháð fjarskiptaþjónustu, aðeins hefði staðið til að vöndla áskriftina við Sýn-appið. Allir geti fengið aðgang að appinu og því fæli það engar hömlur á flutningsrétti í sér. Þau voru afdráttarlaus þegar þau kváðu Fjarskiptastofu hafa brotið á réttindum félagsins. Sýn hafi verið í virkum samskiptum við Premier League, sem hugsi vöruna ekki með sama hætti og Fjarskiptastofa. „Þeir selja þessa vöru til félaga til að þau geti aðgreint sig. Þeir segja að þeir hafi séð þetta í einu öðru landi, Singapúr. Þeir sögðust vera að skoða þetta og hvað þeir gera varðandi Ísland í framtíðinni,“ sagði Eðvald. Rýri verðgildi sýningarréttar Íhlutun Fjarskiptastofu rýri verðgildi sýningarréttarins til lengri tíma, og það eigi sömuleiðis við um aðra sýningarrétti. „Ef þú framleiðir efni og þarft að gefa samkeppnisaðilum þínum aðgang að sama sýningarrétti þá tekur þú alla áhættuna sjálfur, á meðan aðilinn sem fær þetta í hendurnar þarf enga áhættu að taka,“ sagði Eðvald. Í því skyni benda þau á EM í handbolta en RÚV kaupir þann sýningarrétt. „Við ákváðum að bjóða ekki einu sinni í þann sýningarrétt. […] Ef Ísland myndi detta út í milliriðli eru mjög fáir sem horfa á restina og þá situr maður uppi með algjöran forsendubrest í auglýsingum,“ sagði Eðvald. Það dæmi varpi líka ljósi á þá óheppilegu stöðu að Sýn þurfi að keppa við RÚV um sýningarrétti. Þrátt fyrir ákvörðun Fjarskiptastofu sé enski boltinn þó fýsilegur kostur fyrir félagið. „Ákvörðun Fjarskiptastofu er ekki algjör forsendubrestur. Hún aftur á móti neyddi okkur til þess að fara aðeins aftur að teikniborðinu með hvað við gerum við hann og hvernig við mótum kostnaðinn hjá okkur og þess háttar,“ sagði Eðvald. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Komu landsliðsmanninum skemmtilega á óvart Afköstin hrynja ef innivistin er í ólagi Prósent: Traustur grunnur fyrir upplýsta ákvarðanatöku VIRK í starfi – aðstoð fyrir fólk á vinnumarkaði „Hefði varla tíma í annað en að elta fólk með penna og pappír ef ekki væri fyrir Dokobit“ Umræðan Lífeyrir fylgi launum Eigum við að veiða tonn eða verðmæti? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert ESB vill fá aðgang að olíuleiðslunni Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Borgin kreistir markaðinn „Ekki hægt að „vippa upp 90 daga neyðarbirgðum“ Mest lesið Í gær Í vikunni Aldrei gerst að dögum sé bætt við Tölvupósturinn var ekki mistök Andlát: Árni Árnason Andlát: Eysteinn Helgason Íslenska mest töff tungumál í heimi Snjókoma og hvassviðri í kortunum Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Leigubílalögum breytt: Fyrra kerfi aftur tekið upp Leikskólastarfsfólk leitar til Kópavogsbæjar Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Íslendingar þurfi að liggja lágt Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Nýjast á mbl.is » Komu landsliðsmanninum skemmtilega á óvart Afköstin hrynja ef innivistin er í ólagi Prósent: Traustur grunnur fyrir upplýsta ákvarðanatöku VIRK í starfi – aðstoð fyrir fólk á vinnumarkaði „Hefði varla tíma í annað en að elta fólk með penna og pappír ef ekki væri fyrir Dokobit“ Umræðan Lífeyrir fylgi launum Eigum við að veiða tonn eða verðmæti? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Borgin kreistir markaðinn ESB vill fá aðgang að olíuleiðslunni Snjókoma og hvassviðri í kortunum Aldrei gerst að dögum sé bætt við Mest lesið Í gær Í vikunni Aldrei gerst að dögum sé bætt við Tölvupósturinn var ekki mistök Andlát: Árni Árnason Andlát: Eysteinn Helgason Íslenska mest töff tungumál í heimi Snjókoma og hvassviðri í kortunum Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Leigubílalögum breytt: Fyrra kerfi aftur tekið upp Leikskólastarfsfólk leitar til Kópavogsbæjar Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Íslendingar þurfi að liggja lágt Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga

Share this article