Sala Sýnar á miðlum fyrirtækisins á netinu og í útvarpi til Símans tekur um eitt ár, að því er fram kom á fundi Herdísar Drafnar Fjeldsted, forstjóra Sýnar, með starfsfólki fyrirtækisins í morgun. Allt er óbreytt meðan á samningaviðræðum stendur. Starfsmenn sem fréttastofa hefur rætt við segja hins vegar óljósara um hvað tekur við. Svörin um kvöldfréttir og áframhaldandi sjónvarpsrekstur voru mjög loðin að sögn starfsmanna sem fréttastofa hefur rætt við. Kvöldfréttir verða þó áfram á Sýn meðan á söluferlinu stendur en ekki fengust skýr svör um hvort þær yrðu áfram á sínum stað eftir söluna. Sífellt stærri hluti fréttaflutnings fyrirtækisins hefur færst yfir á Vísi í seinni tíð og starfsmannafjöldi í kringum kvöldfréttir minnkað. Síðasta haust hætti Sýn að senda út sjónvarpsfréttir um helgar. Viðræðurnar snúa að kaupum á Símanum, Bylgjunni og fleiri útvarpsstöðvum og netmiðlum. Sjónvarpsstöðin Sýn og enski boltinn fylgja ekki með. Hlutabréfaverð í Sýn hefur hækkað um 21 prósent eftir tilkynninguna í morgun. Hlutabréfaverð í Símanum hefur lækkað um tvö prósent. María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans, sagði í samtali við fréttastofu í morgun að fyrirhuguð kaup féllu vel að því að fyrirtækið væri í vaxtarfasa. Hún sagði að það hefði ekki komið til umræðu að Síminn yrði með sjónvarpsfréttir enda félli sjónvarpsrekstur Sýnar ekki undir þessi viðskipti.