Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hefur lækkað um rúm tvö prósent það sem af er degi og eru lækkanir á breiðum grunni á íslenska hlutabréfamarkaðnum. Ekkert félag í úrvalsvísitölunni hefur hækkað í verði það sem af er degi, samkvæmt markaðsupplýsingum Kauphallarinnar. Heildarvelta nemur um 1,3 milljörðum króna. Bréf Oculis hafa lækkað mest, eða um tæp níu prósent, og stóð síðasta viðskiptaverð í 1.420 krónum á hlut. Miðað við það gengi er markaðsvirði augnlyfjaþróunarfélagsins komið niður í um 88 milljarða króna. Lækkunin kemur í kjölfar mikilla sviptinga í bréfum félagsins síðustu daga. Viðskiptablaðið fjallaði fyrr í dag um að markaðsvirði Oculis væri komið undir 100 milljarða króna. Fyrir lækkunarhrinuna nam markaðsvirði félagsins um 247 milljörðum króna, en miðað við núverandi gengi hafa um 160 milljarðar króna horfið af markaðsvirði félagsins á skömmum tíma. Ekki bara vaxtarfélögin að lækka Þrýstingurinn á Oculis fellur nú saman við víðtækari lækkanir á markaðnum. Bréf Alvotech hafa lækkað um rúm fimm prósent og Amaroq Minerals um tæp tvö prósent. Vaxtarfélög á borð við Oculis og Alvotech eru jafnan viðkvæm þegar fjárfestar draga úr áhættu og endurmeta væntingar um framtíðarvöxt. Lækkanir dagsins eru þó ekki bundnar við vaxtarfélög. Bréf Arion banka hafa lækkað um rúmlega 1,5 prósent og Íslandsbanki um tæp 1,4 prósent. Hagar lækka um tæp 2,5 prósent, Iceland Seafood um tæp 2,8 prósent, Kaldalón um tæp 2,4 prósent og Nova um rúm 2,2 prósent. Af öðrum félögum í úrvalsvísitölunni hafa bréf Icelandair lækkað um rúm eitt prósent, Festi um rúm 1,2 prósent, Eimskips um rúm 1,3 prósent, Eikar um tæp 1,4 prósent og Brims um tæp 1,8 prósent. Hampiðjan stendur óbreytt. Mest viðskipti hafa verið með bréf Íslandsbanka, fyrir um 291 milljón króna. Þar á eftir koma Festi, með um 132 milljóna króna veltu, og Icelandair, með um 114 milljónir króna. Viðskipti með bréf Oculis nema rúmlega 100 milljónum króna, en velta með bréf Alvotech er um 77 milljónir króna og með bréf Amaroq um 71 milljón króna. Markaðurinn ber þess merki að fjárfestar séu að færa sig í varfærnari stöðu. Oculis vegur þungt eftir skarpa lækkun síðustu daga, en verðlækkanirnar í dag ná til flestra geira Kauphallarinnar, meðal annars banka, sjávarútvegs, flutninga, fasteignafélaga og vaxtarfélaga.