Vaxtarfélögin í Kauphöllinni lækka enn og eru áfram meðal þeirra félaga sem hafa gefið mest eftir það sem af er ári. Það sem af er viðskiptum dagsins hefur Alvotech lækkað um rúm 6%, Oculis um rúm 3% og Amaroq um tæp 3%. Alvotech stendur í 424 krónum á hlut, Oculis í 1.700 krónum og Amaroq í 145 krónum. Lækkunin bætist ofan á veika þróun frá áramótum. Oculis hefur lækkað um tæp 34% það sem af er ári, Alvotech um tæp 33% og Amaroq um rúm 20%. Viðskiptablaðið fjallaði á dögunum um að vaxtarfélögin hefðu lækkað mest á árinu. Þá höfðu Oculis, Alvotech og Amaroq öll lækkað mikið, á sama tíma og sjávarútvegsfélögin skáru sig úr með sterkri hækkun. Sú mynd hefur lítið breyst. Síldarvinnslan hefur hækkað um tæp 32% frá áramótum, Brim um rúm 26% og Ísfélagið um tæp 23%. Á sama tíma hafa fjárfestar haldið áfram að selja sig niður í félögum þar sem verðmatið byggist að stórum hluta á framtíðaráföngum. Hjá Oculis horfa fjárfestar til framgangs lyfjaþróunar og rannsóknarniðurstaðna eftir að félagið ákvað að sækja ekki um markaðsleyfi fyrir OCS-01 augndropa við sjónhimnubjúg af völdum sykursýki að svo stöddu. Hjá Alvotech skiptir mestu máli hvernig gengur að fá fleiri hliðstæður líftæknilyfja samþykktar á Bandaríkjamarkaði og hvernig samskipti félagsins við bandarísk lyfjayfirvöld þróast. Amaroq hefur einnig lækkað skarpt á árinu, þrátt fyrir hátt gullverð og jákvæðar fréttir af borunum og uppbyggingu félagsins á Grænlandi. Munurinn á þeim félögum sem hafa hækkað mest og lækkað mest á árinu er því áfram skýr. Fjárfestar hafa verðlagt sjávarútvegsfélögin hærra í kjölfar sterkrar afkomu og góðrar loðnuvertíðar, en vaxtarfélögin hafa áfram átt undir högg að sækja. Sjá einnig Vaxtarfélögin lækkað mest á árinu