Viðskipti | mbl | 1.6.2026 | 12:00 Viðskipti með Oculis vekja grunsemdir Úr Kauphöllinni í Reykjavík. Nasdaq í Bandaríkjunum lokaði á viðskipti með Oculis á föstudag því ekki virtist allt með felldu. mbl.is/Kristinn Magnússon Ásgeir Ingvarsson [email protected] Setja bókamerki Hlutabréfaverð íslenska lyfjafyrirtækisins Oculis lækkaði skarplega á föstudag, eins og mbl.is greindi frá. Lækkunin hélt áfram eftir lokun markaða og það sem af er deginum virðist Oculis enn vera á niðurleið. Á föstudag greindi Oculis frá því að prófanir á svokölluðum OCS-01 augndropum hefðu ekki gengið eins vel og til stóð og mun fyrirtækið því ekki sækja um leyfi fyrir lyfinu hjá Matvæla- og lyfjaeftirliti Bandaríkjanna. Sérfræðingur á fjármálamarkaði bendir á að lækkunin á föstudag hafi byrjað áður en Oculis greindi opinberlega frá niðurstöðum prófananna. „Bréfin tóku að lækka mjög mikið án þess að nokkrar fréttir hefðu komið frá fyrirtækinu og þegar dagslækkunin var komin upp í 25% lokaði kauphöllin í Bandaríkjunum á frekari viðskipti. Þetta bendir til að einhvers staðar hafi upplýsingar lekið út,“ segir viðmælandi mbl.is sem vill ekki láta nafns síns getið. Hjá Nasdaq fara sjálfvirkir ferlar í gang ef hlutabréfaverð félags lækkar mjög hratt og verðþróunin virðist óeðlileg. Viðskiptin voru mjög umfangsmikil og áætlar viðmælandinn að hlutir fyrir jafnvirði a.m.k. 1,5 milljarða króna hafi verið seldir á föstudag. „Þetta er ekki gott og ég botna ekki í því hvernig þetta gat gerst. Þetta hlýtur að vera eitthvað sem verður skoðað nánar.“ Frétt af mbl.is Hlutabréf Oculis féllu eftir að prófanir skiluðu ekki árangri Lækkunin í samræmi við tíðindin Rétt fyrir hádegi í dag var hlutabréfaverð Oculis um helmingi lægra en við opnun markaða á föstudag og segir viðmælandi blaðsins að svona mikil verðlækkun sé ekki óvenjuleg þegar í hlut eiga ung fyrirtæki sem vinna að þróun nýrra lyfja. „Við höfum séð fullt af sprotafyrirtækjum lækka niður um jafnvel 90% við svona tíðindi,“ segir hann. Þar með er ekki sagt að Oculis sé á sömu leið en þó að OCS-01 droparnir hafi valdið vonbrigðum vinnur félagið áfram að þróun og prófunum á OCS-02 og OCS-05 við augnþurrki annars vegar og taugabólgu í auga hins vegar. „Menn hafa talað um að mestu verðmætin gætu verið fólgin í OCS-05 en það er langur tími í að það lyf ljúki prófunum og við verðmat á svona fyrirtækjum eru fjárfestar m.a. að miða við líkindin á að lyf í þróun verði að vöru. Það áttu að vera 90% líkur á að OCS-01 færi í gegn, en líkurnar fyrir hin lyfin tvö þykja lægri.“ Frétt af mbl.is Eldrauð kauphöll í upphafi dags Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Er Donald Trump að reka Ísland inn í ESB? Sigurður Már Jónsson Eignatengsl í sjávarútvegi, enn og aftur! Fleira áhugavert Getum ekki verið með bundið fyrir bæði augu Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Fullveldisbaráttunni lauk 1. júní Skuldahengja yfir ríkjum heims Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Brim kaupir Lýsi á lægra verði Eldrauð kauphöll í upphafi dags Hjalti tekur við fyrirtækjaráðgjöf Arion Sómi í nýjar hendur Hlutabréf Oculis féllu eftir að prófanir skiluðu ekki árangri Helga hættir sem framkvæmdastjóri Bláa lónsins Segja gagnaver og einkaneyslu skýra hagvöxt Bendir á fleiri leiðir en að hækka laun Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Samkomulag í höfn og verkfalli aflýst Sómi í nýjar hendur Bendir á fleiri leiðir en að hækka laun Helga hættir sem framkvæmdastjóri Bláa lónsins Hlutabréf Oculis féllu eftir að prófanir skiluðu ekki árangri Segja gagnaver og einkaneyslu skýra hagvöxt Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Samkomulag í höfn og verkfalli aflýst Margt jákvætt í nýjum verðbólgutölum Óttast að atvinnulífið sé úr jafnvægi Alvarleg staða á íbúðamarkaði Helga hættir sem framkvæmdastjóri Bláa lónsins Klíníkin bætir við sig sérhæfðri starfsemi Fjölda sagt upp hjá Rapyd: Nú rekið af gervigreind Brim kaupir Lýsi á lægra verði Bendir á fleiri leiðir en að hækka laun Vilja reisa nýtt hótel og leita að fjárfestum Sómi í nýjar hendur Hlutabréf Oculis féllu eftir að prófanir skiluðu ekki árangri Lykilstjórnendur kaupa meirihluta í Air Atlanta „Fjórða vaktin“ íþyngjandi fyrirtækjum Pistlar » Sigurður Már Jónsson Er Donald Trump að reka Ísland inn í ESB? Sigurður Már Jónsson Eignatengsl í sjávarútvegi, enn og aftur! Fleira áhugavert Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Röng túlkun ráðherra Segir deiluna „mjög erfiða“ Hætt að lesa Njálu í skólum landsins Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Brim kaupir Lýsi á lægra verði Eldrauð kauphöll í upphafi dags Hjalti tekur við fyrirtækjaráðgjöf Arion Sómi í nýjar hendur Hlutabréf Oculis féllu eftir að prófanir skiluðu ekki árangri Helga hættir sem framkvæmdastjóri Bláa lónsins Segja gagnaver og einkaneyslu skýra hagvöxt Bendir á fleiri leiðir en að hækka laun Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Samkomulag í höfn og verkfalli aflýst Sómi í nýjar hendur Bendir á fleiri leiðir en að hækka laun Helga hættir sem framkvæmdastjóri Bláa lónsins Hlutabréf Oculis féllu eftir að prófanir skiluðu ekki árangri Segja gagnaver og einkaneyslu skýra hagvöxt Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Samkomulag í höfn og verkfalli aflýst Margt jákvætt í nýjum verðbólgutölum Óttast að atvinnulífið sé úr jafnvægi Alvarleg staða á íbúðamarkaði Helga hættir sem framkvæmdastjóri Bláa lónsins Klíníkin bætir við sig sérhæfðri starfsemi Fjölda sagt upp hjá Rapyd: Nú rekið af gervigreind Brim kaupir Lýsi á lægra verði Bendir á fleiri leiðir en að hækka laun Vilja reisa nýtt hótel og leita að fjárfestum Sómi í nýjar hendur Hlutabréf Oculis féllu eftir að prófanir skiluðu ekki árangri Lykilstjórnendur kaupa meirihluta í Air Atlanta „Fjórða vaktin“ íþyngjandi fyrirtækjum