Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Dagur Kári endaði í 6. sæti á heimsbikarmóti

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir 31. maí 2026 kl. 17:25ÍÞRÓTTIR Fimleikar Dagur Kári endaði í 6. sæti á heims­bik­ar­móti Jóhann Páll Ástvaldsson Dagur Kári kynntur til leiks í dag. Fimleikasamband Íslands Heimsbikarmóti í áhaldafimleikum í Slóveníu lauk í dag. Í dag keppti Dagur Kári Ólafsson til úrslita á tvíslá og hafnaði hann í 6. sæti. Í gær kepptu þrír Íslendingar til úrslita á stökum áhöldum. Auður Anna Þorbjarnardóttir varð í 7. sæti í stökki og Ágúst Ingi Davíðsson og Jónas Ingi Þórisson urðu í 8. og 6. sæti á gólfi. Fyrir 3 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál „Þarna er verið að lýsa gríð­ar­legu álagi og þungu starfs­um­hverfi sem þarf að taka á“ Formaður félags grunnskólakennara segir niðurstöður skýrslu um starfsumhverfi í grunnskólum ekki koma sér á óvart. Samkvæmt skýrslunni mæðir mest á umsjónarkennurum. Fyrir 35 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Leiðir Brann og Freys skilja Freyr Alexandersson hættir í dag sem þjálfari Brann í norsku úrvalsdeild karla í fótbolta. Í yfirlýsingu félagsins segir að um sameiginlega niðurstöðu sé að ræða. Liðinu hefur gengið erfiðlega í upphafi tímabilsins og er sem stendur í 11. sæti. Fyrir 42 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Múlaþing Ferða­þjón­ust­an finnur fyrir fækkun skemmti­ferða­skipa Færri skemmtiferðaskip koma á Borgarfjörð eystra í sumar og ferðaþjónustan finnur fyrir því. Sveitarstjóri segir stjórnvöld þurfa að endurskoða álögur á skipin. Fyrir 49 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Skagafjörður Und­ir­rit­uðu vilja­yf­ir­lýs­ingu um stækk­un FNV Siguróli Magni Sigurðsson Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, skrifaði í síðustu viku undir viljayfirlýsingu með Skagfirðingum um stækkun verknámshúss Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Verkefnið hefur verið lengi í bígerð en nú er útlit fyrir að framkvæmdir hefjist næsta vetur. Eins og RÚV.is greindi frá á dögunum hefur sveitarstjórn Skagafjarðar boðist til að halda utan um verkefnið til þess að liðka fyrir uppbyggingunni. Nú er orðið staðfest að Skagafjörður mun hafa umsjón með framkvæmdum. Ríkissjóður mun greiða 60% á móti 40% frá sveitarfélögum á Norðurlandi vestra. Kennt er í gámum sökum húsnæðisskorts á verknámsbraut FNV RÚV / Sölvi Andrason Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Andlát Sig­urð­ur Fannar lést í fang­els­inu á Hólms­heiði Maðurinn sem lést í fangelsinu á Hólmsheiði í gær afplánaði dóm fyrir að bana dóttur sinni. Lögmaður hans segir málið vekja spurningar um aðbúnað og öryggi fanga. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Fram­sókn og Sjálf­stæð­is­menn vinna saman í Húna­þingi Vestra Siguróli Magni Sigurðsson Framsókn og aðrir framfarasinnar skrifuðu undir meirihlutasamkomulag við Sjálfstæðismenn og óháða í Húnaþingi vestra í gærkvöldi. Undirritun málefnasamnings fór fram á Borðeyri. N-listinn, Nýtt afl, er stærsti flokkur Húnaþings vestra en hann fær ekki að taka þátt í meirihlutanum. N-listinn fékk 37,8% atkvæða í kosningunum 16. maí og þrjá fulltrúa kjörna. Framsókn og Sjálfstæðisflokkur fengu tvo fulltrúa hvor og mynda saman meirihluta næstu fjögur árin. Örn Arnarson, oddviti Sjálfstæðismanna, verður formaður byggðarráðs og Sigurður Líndal Þórisson, oddviti Framsóknar, verður forseti sveitarstjórnar. Oddvitar D og B lista. Örn Arnarsson og Sigurður Líndal handsala meirihlutasamkomulag á Borðeyri Faecbook / Facebook Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Allt fram­halds­skóla­nám á einum stað Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur tekið í notkun nýjan vef þar sem í fyrsta sinn eru birtar allar viðurkenndar námsbrautir framhaldsskóla á einum stað. Viðurkenndar námsbrautir sem nú eru birtar á vefnum eru um 400 í 37 skólum. Markmið vefsins framhaldsskolanam.is er að auðvelda aðgengi að upplýsingum um námsframboð framhaldsskóla í notendavænu viðmóti og birtingin liður í aðgerðum stjórnvalda til að bæta yfirsýn yfir menntakerfið og auka stafræna þjónustu, að því er segir í tilkynningu. Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Ungt fólk bregð­ur sér í hlut­verk full­trúa NATO á Al­þingi í haust Model NATO-ráðstefna verður haldin á Alþingi í haust. Þar fær ungt fólk tækifæri til að bregða sér í hlutverk fulltrúa aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins og takast á við sviðsett alþjóðlegt neyðarástand. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Brýnt að „spýta í lófana“ og fjölga frið­lýst­um haf­svæð­um Alþjóðleg markmið gera ráð fyrir verndun 30% land- og hafsvæða fyrir 2030. Ísland er langt á veg komið með að ná því markmiði á landi en aðeins 2% hafsvæða falla undir þessa skilgreiningu. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Pólland Þjóð­veg­ur­inn til heljar end­ur­vak­inn í Pól­landi Leið 666 til Hel hefur verið endurvakin í Póllandi. Pólskt rútufyrirtæki hafði áður látið undan þrýstingi trúarhópa og breytt númeri leiðarinnar. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Flugi Ic­elandair til Zurich aflýst Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Flugi Icelandair til Zurich, sem fara átti klukkan 7:20 í morgun, var aflýst vegna þess að ekki tókst að manna áhöfn. Þetta staðfestir Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair. Icelandair hefur þurft að aflýsa nærri 40 flugferðum vegna manneklu síðan kjaradeilu við flugmenn var vísað til ríkissáttasemjara. Ásdís segir ekki hægt að segja til um hvort aflýsa þurfi fleiri flugferðum í dag, þó ekki sé útlit fyrir það eins og er. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hæg­læt­is­veð­ur í kraft­lít­illi lægð Hæglætisveður verður á landinu í dag og næstu daga. Þungbúið og svalt austan til í dag og dálítil rigning, en úrkomulítið í öðrum landshlutum þar sem hiti er hærri og gæti náð allt að 16 stigum. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Malta Verka­manna­flokk­ur for­sæt­is­ráð­herr­ans vann sögu­leg­an sigur í þing­kosn­ing­um gær­dags­ins Verkamannaflokkur forsætisráðherra Möltu hlaut rúmlega helming atkvæða í þingkosningum sem haldnar voru í gær. Þetta voru fjórðu kosningarnar í röð þar sem flokkurinn sigrar. Uggur um efnahagsmál varð til þess að boðað var til kosninga snemma. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Öku­mað­ur hand­tek­inn og annar flutt­ur á slysa­deild eftir um­ferð­ar­óhapp Markús Þ. Þórhallsson Ökumaður var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og einn fluttur á slysadeild með minniháttar áverka eftir umferðarslys miðsvæðis í Reykjavík í gærkvöld eða nótt. Lögreglukonur í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni. RÚV Minnst einn hlaut sekt fyrir hraðakstur að því er segir í morgunskeyti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og bifhjólamaður var sektaður fyrir að aka hjólinu án ökuréttinda og án öryggisbúnaðar ásamt því sem það var ekki rétt skráð. Fjórir menn reyndu að brjótast inn í hús í úthverfi Kópavogs en á öryggismyndavélum má sjá þá forða sér þegar viðvörunarkerfi tók að óma. Átta gistu fangageymslur höfuðborgarsvæðisins í morgun. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Um það bil 400 jarð­skjálft­ar á Hell­is­heiði und­an­far­inn sól­ar­hring Markús Þ. Þórhallsson Um það bil 400 jarðskjálftar hafa mælst undanfarinn sólarhring á Hellisheiði nærri Litlu kaffistofunni með uppruna um þrjá kílómetra vestan við Húsmúla. Aðsend mynd / Kristján Sævald Pétursson Hrinan sem hófst í gær virðist ekki í rénun. Sá stærsti var af stærðinni þrír komma tveir um miðjan dag í gær og einnig hafa mælst nokkrir skjálftar milli tveir og þrír að stærð. Langflestir eru smáir. Enn bendir allt til þess að skjálftarnir tengist jarðskorpuhreyfingum að sögn náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands. Engar vísbendingar séu um að rekja megi skjálftana til niðurdælingar vatns nærri Hellisheiðarvirkjun og engin merki séu um gosóróa. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Mikið um dýrðir á 100 ára afmæli Monroe Í dag eru 100 ár liðin frá fæðingu Marilyn Monroe. Minningu leikkonunnar verður haldið á lofti í Hollywood í dag. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Rúmenía Rann­sókn sýnir rúss­nesk­an upp­runa dróna sem flaug á fjöl­býl­is­hús í Galati Rannsókn rúmenskra sérfræðinga leiðir í ljós rússneskan uppruna dróna sem fór inn fyrir lofthelgi landsins á föstudag og skall á þaki fjölbýlishúss. Forseti Rúmeníu segir sökina algerlega liggja hjá Rússum sem þvertaka fyrir að eiga sök að máli. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Færeyjar Lög­reglu berast tugir til­kynn­inga viku­lega um ólög­lega starf­semi er­lendra leið­sögu­manna Markús Þ. Þórhallsson Tveir erlendir leiðsögumenn voru handteknir um helgina og vísað brott frá Færeyjum ásamt því að vera gert að greiða sekt fyrir að starfa þar án tilskilinna leyfa. Frá Sandey í Færeyjum. Ferðamennska hefur færst talsvert í vöxt á síðustu árum. Vefur / Kringvarpið Mönnunum verður ekki leyft að koma aftur til Færeyja um ótiltekinn tíma. Hið sama gerðist fyrir tveimur vikum, samkvæmt umfjöllun færeyskra fréttamiðla. Lögreglan í Þórshöfn hafi í nægu að snúast þar sem henni berist á annan tug tilkynninga daglega frá áhyggjufullum almenningi vegna starfa erlendra leiðsögumanna. Vefritið Portalsegir lögregluna hafa í liðinni viku rannsakað minnst þrjú meint brot starfsmanna ferðaskrifstofa. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Mannréttindi Am­ne­sty segir Rússa heyja áróð­urs­stríð innan mennta­kerf­is­ins Mannréttindasamtök segja rússnesk stjórnvöld ekki aðeins heyja stríð á vígvöllum Úkraínu heldur einnig áróðursstríð í skólastofum Rússlands og hernuminna svæða Úkraínu. Nemendum sé kennt að treysta ríkinu og forðast gagnrýni. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri sendir Banda­ríkja­for­seta pillu Jerome Powell segir mikilvægt að standa vörð um sjálfstæði bandaríska seðlabankans. Hann var verðlaunaður af John F. Kennedy-stofnuninni fyrir að gera það í störfum sínum. Bankastjórinn hefur löngum eldað grátt silfur við Bandaríkjaforseta. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Leið­tog­ar for­dæma að­gangs­hörku Ísra­ela í Suður-Líban­on Leiðtogar ríkja í Evrópu fordæma aðgangshörku Ísraelshers í Suður-Líbanon og hvetja til að

Share this article