Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 7 mínútumÍÞRÓTTIR Fimleikar Þrír Íslendingar kepptu til úrslita á heimsbikarmóti Jóhann Páll Ástvaldsson Ágúst Ingi. RÚV Auður Anna Þorbjarnardóttir, Ágúst Ingi Davíðsson og Jónas Ingi Þórisson kepptu til úrslita á stökum áhöldum á heimsbikarmóti í Slóveníu í dag. Jónas Ingi og Ágúst Ingi kepptu á gólfi og enduðu í 6. og 8. sæti. Afar lítið skildi að 3. og 8. sæti en einungis munaði 0,234 í einkunn. Auður Anna keppti í stökki og varð í 7. sæti. Dagur Kári Ólafsson keppir til úrslita á tvíslá á morgun klukkan 10:50. Fyrir 16 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Austurland Tókst að koma öllu fé í skjól undan vorhreti á Austurlandi Sauðfjárbóndi á Austurlandi segir vetrarfærð og snjókomu í gær hafa gengið yfir áfallalaust. Vel tókst að koma öllu fé í skjól. Fyrir 19 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Vogar Einn fluttur á heilbrigðisstofnun vegna eldsvoða í Vogum Brunavarnir Suðurnesja slökktu eld í bílskúr í einbýlishúsi í Vogum í dag. Einn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja með væg einkenni reykeitrunar. Fyrir 42 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Skólastofan færð í fjósið og fjárhúsin Sveitasæla nefnist ný valgrein hjá Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit þar sem nemendum gefst tækifæri á að taka þátt í sveitastörfum og læra um landbúnað. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndir Rabbaði við Dolph Lundgren á sænsku á alheimsfrumsýningu nýrrar myndar um He-Man Jóhannes Haukur er umkringdur stjórstjórnum í kvikmyndinni Hetjur heimingeimsins þar sem hann fer með hlutverk Fisto. Myndin verður frumsýnd á Íslandi í næstu viku en leikarinn sótti alheimsfrumsýningu myndarinnar í Los Angeles á dögunum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Vistkerfi berskjölduð fyrir ágengum tegundum Líffræðingur hjá Náttúruminjasafni Íslands segir slappt regluverk um framandi ágengar tegundir þýða að íslensk náttúra sé í raun varnarlaus. Ný aðgerðaráætlun stjórnvalda þurfi að tryggja skýrt regluverk og öflugt eftirlit. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Varar við stórri árás Rússa á Úkraínu Forseti Úkraínu segir að Rússar undirbúi nú mjög stóra árás á landið og hvetur íbúa til að grípa til ráðstafana til að tryggja öryggi sitt. Rússar hafa beðið sendifulltrúa sína í Úkraínu að yfirgefa landið. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Vogar Eldur í einbýlishúsi í Vogum Brunavarnir Suðurnesja voru kallaðar út að einbýlishúsi í Vogum í dag. Eldur kviknaði í kjallara í einbýlishúsi í bænum. Enginn er talinn í hættu. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Hegseth: „Við getum auðveldlega hafið stríðið að nýju“ Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir þá auðveldlega getað hafið stríðið við Íran að nýju. Forseti Bandaríkjanna tók enga ákvörðun um fyrirliggjandi samningsdrög í gær, þrátt fyrir að hafa áður boðað hana. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Annar maður grunaður um aðild að hvarfi Anne-Elisabeth Hagen Lögregla í Noregi hefur nýjan mann grunaðan um aðild að hvarfi Anne-Elisabeth Hagen, sem hvarf af heimili sínu fyrir átta árum. Tom Hagen, eiginmaður hennar, lá áður undir grun. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enska knattspyrnufélagið Liverpool hefur sagt hollenska knattspyrnustjóranum Arne Slot upp störfum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lögreglan heldur spilunum þétt að sér varðandi aðgerðir í Hveragerði Lögreglan á Suðurlandi verst allra fregna um handtöku í Hveragerði í gærkvöld. Sérsveit ríkislögreglustjóra kom að aðgerðunum. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Arne Slot rekinn frá Liverpool Alexander Kristjánsson Enska úrvalsdeildarliðið Liverpool hefur rekið þjálfara sinn, Arne Slot. Þetta fullyrðir ítalski blaðamaðurinn Fabrizio Romano í færslu á X. Slot hefur stýrt Liverpool í tvö ár en hann tók við starfinu af Þjóðverjanum Jürgen Klopp. Slot gerði félagið að enskum meisturum á fyrra tímabili sínu. Gengið á nýloknu tímabili var hins vegar langt undir væntingum. Félagið endaði í 5. sæti deildarinnar og tókst rétt svo að tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Stutt er síðan Mohammed Salah, sem er goðsögn hjá félaginu, gagnrýndi Slot nokkuð bersýnilega í færslu á Instagram og hlaut góðar undirtektir fyrrverandi og núverandi leikmanna. Arne Slot. EPA / Peter Powell Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Vafasöm póstsamskipti Andrews afhent bresku hirðinni fyrir sex árum Kaupsýslumaðurinn Kevin Stanford lak til bresku hirðarinnar um 30.000 tölvupóstum sem sýna að fyrrverandi Bretaprins deildi viðkvæmum upplýsingum við embættisstörf. Tölvupóstarnir tengjast meðal annars föllnum íslenskum banka. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélagsmiðlar Bóndi í Skagafirði heimsfræg á TikTok: „Var alls ekki að búast við þessu“ Bóndi í Skagafirði sem sýnir frá sveitalífinu á samfélagsmiðlinum TikTok hefur hlotið heimsathygli. Dýrin skipa þar stórt hlutverk en einstaka lömb og kiðlingar hafa þó borið af. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Flugvellinum í München lokað tímabundið vegna dróna Alexander Kristjánsson Flugvellinum í München var lokað um skamma stund í morgun vegna gruns um að óþekktur dróni væri á sveimi á flugvallarsvæðinu. Þýska blaðið Bild segir að flugmaður hafi gert „grunsamlega uppgötvun“ um klukkan níu í morgun að staðartíma. Engar vélar tóku á loft eða lentu á vellinum í rúma klukkustund. Lögregla og viðbragðsaðilar hafa leitað að drónanum en eftir því sem næst verður komist hefur enginn fundist. Torkennilegir drónar hafa sést á sveimi við fleiri flugvelli í Evrópu á síðustu mánuðum. Í haust var flugvöllum í Danmörku og Noregi lokað um nokkurra klukkustunda skeið vegna drónaflugs. EPA / ANNA SZILAGYI Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Allhvasst við suðausturströndina Hugrún Hannesdóttir Diego Lægð suður í hafi og hæð norðan lands beina norðaustan- og austanátt til landsins. Búast má við 5 til 13 metrum á sekúndu í dag og rigningu með köflum. Allhvasst verður við suðausturströndina þar sem búist er við 10 til 18 metrum á sekúndu. Líkur eru á slyddu austanlands með snjókomu til fjalla en eftir hádegi fer heldur hlýnandi þar. Hiti verður 3 til 10 stig í dag, mildast á Vesturlandi. Á morgun má búast við austlægri eða breytilegri átt, víða golu eða kalda. Súld eða dálítilli rigningu á Suðaustur- og Austurlandi. Hiti 4 til 9 stig en um landið vestanvert er gert ráð fyrir stöku skúrum og að hiti verði að 15 stigum. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Maður handtekinn fyrir ógnandi tilburði með skærum og annar með fullan poka fjár og fíkniefna Maður var handtekinn í miðborg Reykjavíkur fyrir ógnandi tilburði með skærum sem hann notaði til að skemma bíl. Hann hafði einnig í hótunum við lögreglumenn. Maður var handtekinn með poka fullan af fé og fíkniefnum og bílahittingur fór úr böndum. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Menning Hvernig nær Bad Bunny til fólks sem skilur hann ekki? Tónlistarmaðurinn Bad Bunny er sá vinsælasti í heimi og nær til fólks um allan heim þrátt fyrir að syngja alfarið á móðurmáli sínu, spænsku. En hver er hann og af hverju kallar hann sig Bad Bunny? Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Óttast að erfðaskrá um Vatnsendajörðina fylgi bölvun Í áratugi hefur Hjaltested-ættin tekist á um jörðina Vatnsenda sem umlykur Elliðaárvatn í Kópavogi. Umdeild erfðaskrá hefur fært útvöldum karlmönnum í ættinni jörðina og ómæld auðæfi en líka hneppt þá í fjötra. Hinir útvöldu hafa allir látist ungir. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Trump sagður fílhraustur og vel í stakk búinn að stjórna landi og her — mætti þó léttast Læknir Bandaríkjaforseta segir hann mjög hraustan þótt hann megi tapa nokkrum kílógrömmum. Hann sé vel hæfur til að gegna embætti þjóðarleiðtoga og yfirmanns heraflans. Honum hafi þó verið ráðlagt um mataræði og áframhaldandi töku aspíríns. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Háværar deilur vegna áforma um byggingu stærsta gagnavers heims Háværar deilur hafa risið vegna áforma kanadísks fjárfestis um að reisa það sem getur orðið stærsta gagnver heims í Utah-ríki. Verið er sagt geta ógnað lífríki Stóra-Saltvatns og aukið losun gróðurhúsalofttegunda. Eigandinn segir svo ekki vera. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Framtíðarsamband Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands rætt á leynifundi í Washington Viðræður um samband Bandaríkjanna við Danmörku og Grænland héldu áfram í Washington í vikunni. Nýskipaður aðstoðarþjóðaröryggisráðgjafi tók á móti sendinefndum sem ræddu meðal annars varnarsamstarf ríkjanna. 30. maí 2026 kl. 4:00ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Ólöglegt að bæta nafni Trumps við heiti Kennedy-miðstöðvarinnar Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagst ætla að hlíta úrskurði alríkisdómara sem fyrirskipaði honum að fjarlægja nafn sitt úr heiti Kennedy-sviðslistamiðstöðvarinnar í höfuðborginni Washington. Ólöglega hafi verið staðið að málum. 30. maí 2026 kl. 3:10ERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Eyðilegging New Glenn-flaugarinnar talsvert áfall fyrir NASA og Blue Origin Bandaríska geimferðastofnunin NASA og Blue Origin-geimferðafyrirtækið urðu fyrir talsverðu áfalli í gær þegar New Glenn-eldflaugin sprakk í loft upp. Hún er einn af lykilþáttum í fyrirhuguðum mönnuðum og ómönnuðum tunglferðum. 30. maí 2026 kl. 2:14ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bandaríkin fagna „uppbyggilegum“ samræðum ísraelskra og líbanskra herforingja Aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna átti það sem hann kallar uppbyggilegar samræður við ísraelska og líbanska herforingja um frið milli ríkjanna. Samtalið bæti miklu við þær pólitísku viðræður ríkjanna sem boðaðar hafa verið. 30. maí 2026 kl. 1:00ERLENDAR FRÉTTIR Kúba Háttsettir hershöfðingjar ræddu saman í bandarískri herstöð Bandarískur og kúbanskur hershöfðingi hittust skamma stund í gær í bandarískri herstöð á Kúbu og ræddu öryggismál. Samskipti land