Fyrsta umferð Íslandsmótsins í drifti fór fram um helgina. Úrslitaeinvígið í opnum flokki var æsispennandi en þar mætast tveir bílar á sama tíma. Keppt hefur verið í drifti á Íslandi í rúm 20 ár og gefa dómarar stig fyrir hraða, hversu mikið bíllinn er á hlið og hvernig ökuþórar tengja þessi svokölluðu „slæd“ milli beygja. Fyrsta umferð Íslandsmótsins í drifti fór fram um helgina. Úrslitaeinvígi í opnum flokki var afar athyglisvert en bílar Fabian Dorozinski og Sindra Má Ingimarssyni Málin flækjast í opnum flokki Í opna flokknum flækjast málin, þar keyra tveir saman í braut og fást því einnig stig fyrir hversu vel aftari bíllinn nær að elta þann fremri. Í undanúrslitum mættust Íslandsmeistarar síðastliðinna fjögurra ára. Hrafnkell Rúnarsson er ríkjandi tvöfaldur meistari en Fabian Dorozinski vann árin 2022 og 2023. Einvígið vann Fabian sem mætti Sindra Má Ingimarssyni í úrslitum, eftir að Sindri sló út Viktor Guðbergsson. Í úrslitarimmunni voru bílar Fabians og Sindra nánast límdir saman. Engum kom á óvart að dómarar gátu ekki gert upp á milli þeirra og þurftu þeir því að fara þriðju ferðina. Þar varð Fabian á örlítil mistök sem var nóg til að sigurinn fór til Sindra. Götubílaflokkur Í flokki minni götubíla mættu aðeins þrír bílar í Caveman drift keppnina. Nýliðinn Magnús Fannar Birgisson vann Aron Inga Elsuson í úrslitum. Í götubílaflokki má gera meiri breytingar á vél- og hjólabúnaði. Þar tapaði Bjarki Már Skúlason í úrslitum gegn Michal Kujoth sem vann með talsverðum yfirburðum að mati dómara. Betur verður fjallað um Caveman-driftið í Mótorsporti hér á RÚV næsta laugardag.