Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sekúndubarátta um sigurinn: „Þetta var óþarflega nálægt“

Read Full Article →

Ljómarallið var rekið í Skagafirði í gær en það er þriðja umferð Íslandsmótsins. Bílaklúbbur Skagafjarðar hélt rallið og að venju voru eknar fjórar ferðir um Mælifellsdal og tvær um Vesturdal. Öll augu beindust að Skoda Fabia RS bíl systkinanna Daníels og Ástu Sigurðarbarna enda unnu þau síðustu keppni með yfirburðum. Þau sprengdu dekk á fyrstu leið og töpuðu fimm mínútum en þrátt fyrir það náðu þau að vinna sig upp í þriðja sætið í lok dags. Þriðja mót Íslandsmótsins í rallakstri var haldið í Skagafirðinum í gær. Sekúndubarátta var um sigurinn og spenna jókst í baráttu efstu manna á Íslandsmótinu. Miklar sviptingar í baráttunni um sigurinn Algjör sekúnduslagur var um fyrsta sætið. Agnar Ingi Sigurðsson og Ísak Guðjónsson hafa ekki haft lukkudísirnar með sér í sumar og sprengdu dekk á annari sérleið. Ríkjandi Íslandsmeistararnir Baldur Arnar Hlöðversson og Heimir Snær Jónsson tóku þá forystuna en náðu ekki að halda henni til loka og voru aðeins 9 sekúndum frá sigri eftir rúmlega klukkutíma akstur á sérleiðunum. „Ég veit ekki hvar við hefðum geta keyrt hraðar. En þetta er búinn að vera alveg geggjaður dagur og ótrúlega skemmtileg keppni,“ sagði Baldur en hann og Heimir leiða enn Íslandsmótið. Óþarflega nálægt Agnar Ingi og Ísak minnkuðu forskotið með sigrinum um helgina. „Þetta var óþarflega nálægt en gaman,“ sagði Ísak sem fannst sigurinn aðeins of naumur fyrir sinn smekk. Í flokki aflminni bíla skoruðu bræðurnir Björgólfur og Hergill Kristinssynir fullt hús stiga og juku forskot sitt umtalsvert í Íslandsmótinu í þeim flokki.

Share this article