Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 5 mínútumÍÞRÓTTIR Fimleikar Dagur Kári endaði í 6. sæti á HM Jóhann Páll Ástvaldsson Dagur Kári kynntur til leiks í dag. Fimleikasamband Íslands Heimsbikarmótinu í áhaldafimleikum lauk í dag. Í dag keppti Dagur Kári Ólafsson til úrslita á tvíslá og hafnaði hann í 6. sæti. Í gær kepptu þrír Íslendingar til úrslita á stökum áhöldum. Auður Anna Þorbjarnardóttir varð í 7. sæti í stökki og Ágúst Ingi Davíðsson og Jónas Ingi Þórisson urðu í 8. og 6. sæti á gólfi. Fyrir 18 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Flöggun fána ekki verið vesen þar til á síðasta kjörtímabili Oddviti Viðreisnar í borginni segir niðurfellingu fánareglna vera til þess að einfalda hlutina. Flöggun fána hafi ekki verið vandamál í ráðhúsinu þar til á síðasta kjörtímabili. Fyrir 37 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Ráðgátan um dularfulla hvellinn yfir Suður-Karólínu enn óleyst Íbúum víða í Suður-Karólínu var brugðið þegar hávær hvellur glumdi á fimmtudag. Jarðvísindamenn telja mögulegt að þarna hafi eitthvað rofið hljóðmúrinn og getgátur um gjöreyðingarvopn og geimverur geysast um samfélagsmiðla. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Lyfjameðferð gæti verið óþörf fyrir stóran hluta þeirra sem greinast með brjóstakrabbamein Lyfjameðferð gæti verið óþörf fyrir stóran hluta þeirra sem fá brjóstakrabbamein, samkvæmt nýrri alþjóðlegri rannsókn. Krabbameinslæknir á Landspítala segir niðurstöðurnar mjög áhugaverðar, lyfjameðferð reynist sjúklingum oft mjög þung. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Mannlíf Keppendur í Mývatnsmaraþoni létu sumarsnjóinn ekki á sig fá Mývatnsmaraþonið fór fram í slyddu og snjó. Keppendur létu veðrið ekki á sig fá en yfir hundrað manns tóku þátt í hlaupinu. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hveragerðisbær Hlauparar frá 38 þjóðlöndum í Hengli Ultra hlaupinu í Hveragerði Hlauparar frá 38 þjóðlöndum eru nú að koma til landsins til að keppa í einu stærsta utanvegahlaupi landsins í Hveragerði, „Hengill Ultra“, en reiknað er með að um þúsund hlauparar taki þátt í hlaupinu. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar NM: Nálægt Íslandsmeti, kastaði með lófanum og Anaconda-maðurinn Norðurlandamótinu í frjálsíþróttum lauk í dag. Erna Sóley Gunnarsdóttir tók gull í kúluvarpi þrátt fyrir að geta ekki kastað af fullum þunga. Þá tóku Guðni Valur Guðnason, Guðrún Karitas Hallgrímsdóttir og Sindri Hrafn Guðmundsson silfur. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Hættur við að hætta í ríkisfangssamstarfi Formaður hægriflokksins Venstre er fallinn frá áformum um að Danir segi sig frá Evrópusamningi um ríkisfang. Þess í stað vill hann beita sér fyrir breytingu á samkomulaginu. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Áslaug Arna flytur heim, tekur sæti á þingi og býður í veislu Alexander Kristjánsson Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er flutt aftur til landsins og tekur senn á ný sæti á þingi. Áslaug hefur síðasta vetur verið í leyfi frá þingmennsku og stundað nám í New York en hún útskrifaðist á dögunum. Í færslu á samfélagsmiðlum býður Áslaug stuðningsmönnum til fögnuðar í anddyri Parliament-hótelsins við Austurvöll á fimmtudag kl. 17 en tekur sérstaklega fram að það sé ekki útskriftarveisla. Facebook / Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fangelsismál Mikilvægt að efla forvarnir gegn sjálfsvígum í fangelsum Maður fannst látinn í fangaklefa á Hólmsheiði í morgun eftir að hafa svipt sig lífi. Formaður Afstöðu, félags fanga, segir að efla þurfi forvarnir með bættri sálfræðiþjónustu í fangelsum og fjölgun fagfólks. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Hefði haldið að það væru brýnni verkefni í borginni en fánareglur Borgarfulltrúi Vinstrisins segir sérstakt að fánareglur séu eitt af fyrstu málunum á dagskrá hjá nýjum meirihluta í borginni. Tillaga meirihlutans um að fella núgildandi fánareglur úr gildi geri það óskýrt hvenær og hvaða fánum megi flagga. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Naumt tap Íslands í Tókýó Íslenska karlalandsliðið í fótbolta tapaði naumlega fyrir Japan, 1-0, í vináttulandsleik í Tókýó í dag. Sigurmark Japana kom á 87. mínútu. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð Vilja hertar reglur um frostlög sem notaður hefur verið til að drepa dýr Formaður Dýraverndarsambands Íslands biður stjórnvöld um að takmarka innflutning á frostlegi og banna þá sem innihalda ákveðin eiturefni. Lögurinn sé notaður til að eitra fyrir dýrum og sé stórhættulegur. Merkja þurfi umbúðir betur og auka meðvitund. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland „Staða ferðaþjónustunnar er góð í sumar“ segir hótelstjóri Hótels Rangár Staða ferðaþjónustunnar er góð í sumar segir Friðrik Pálsson á Hótel Rangá. Hann setur hins vegar spurningarmerki við haustið. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Sex ferðum Icelandair aflýst – Enn langt í land í kjaradeilu Ekki tókst að manna áhafnir fyrir sex flugferðir Icelandair í dag og var flugi til og frá London, Glasgow og Róm því aflýst. Enn er langt í land í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Ferðaþjónusta Hver kúnni var sigur, en nú þarf að vísa fólki frá Ragnhildur Ágústsdóttir stofnaði fyrirtækið Lava Show ásamt eiginmanni sínum með ekkert nema bjartsýnina að vopni. Þau áttu þá tvo unga syni sem báðir höfðu verið greindir með einhverfu og þriðji drengurinn var á leiðinni. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fangelsismál Grunur um sjálfsvíg á Hólmsheiði í nótt Maður lést í fangelsinu á Hólmsheiði í nótt. Samkvæmt heimildum fréttastofu sat hann inni fyrir manndráp og er grunur um að hann hafi framið sjálfsvíg. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lýðheilsa Reykingar á undanhaldi en tóbaksnotkun mikil meðal evrópskra ungmenna Reyklausi dagurinn er í dag. Sígarettureykingar fara minnkandi víða um heim en Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur miklar áhyggjur af auknum vinsældum nikótínpúða og rafrettna meðal ungs fólks. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Leigubílastöðin flutt í Jólagarðinn - en verður ekki jólahús Gamla leigubílastöð BSO við Strandgötu á Akureyri verður flutt í Jólagarðinn í Eyjafjarðarsveit. Eigandi garðsins segir þau þurfa að hafa hraðar hendur, enda á húsið að vera farið um miðjan júní. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Læknar án landamæra uggandi yfir útbreiðslu ebóla Læknar án landamæra eru uggandi yfir útbreiðslu ebóla í nokkrum ríkjum Mið-Afríku. Aldrei hafa jafnmörg tilfelli verið skráð svo skömmu eftir að faraldri var lýst yfir. Heilbrigðisyfirvöld í Kongó ráði ekki við að hefta útbreiðsluna. Fyrir 9 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntir Fannst fyndið að gera pólitískar ferskeytlur „Mér leið eins og ég væri mjög mikið á grensunni að gera pólitískar ferskeytlur og reyna að vera fyndin,“ segir Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir sem nýlega gaf út myndasögusafnritið FNÆS. Í því eru nær allar myndasögur sem hún hefur birt frá árinu 2021. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hiti að 15 stigum í dag Hugrún Hannesdóttir Diego Hæð við Jan Mayen og kraftlítið lægðasvæði suður í hafi valda austlægri eða breytilegri átt á landinu í dag. Víða má búast við golu eða kalda og stöku skúrum á víð og dreif. Hiti verður 7 til 15 stig en svalara á Suðaustur- og Austurlandi. Þar má búast við súld eða dálítilli rigningu. Á morgun verður hæg breytileg átt og á Austurlandi verður áfram svöl þokusúld. Líkur eru á stöku skúrum í öðrum landshlutum og sæmilega mildu veðri en þó geta þokubakkar látið á sér kræla við ströndina. RÚV / Ragnar Visage 31. maí 2026 kl. 7:26INNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Jarðskjálfti af stærðinni 2,8 skammt frá Hellisheiðarvirkjun Markús Þ. Þórhallsson Jarðskjálfti af stærðinni 2,8 varð laust fyrir klukkan sjö í morgun, um þrjá kílómetra austan við Húsmúla, skammt frá Hellisheiðarvirkjun. Skjálftinn átti upptök um 3 kílómetra austan Húsmúla skammt frá Hellisheiðarvirkjun. Carbfix / Árni Sæberg Á annan tug minni eftirskjálfta hafa mælst í kjölfarið að sögn Ingibjargar Andreu Bergþórsdóttur, náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands. Þarna hafa mælst um fimmtíu mjög smáir skjálftar síðustu vikuna, sem Andrea segir varla hægt að tala um sem hrinu. Hún segir langlíklegast að skjálftarnir tengist jarðskorpuhreyfingum. Ekki hafa borist tilkynningar um að skjálftinn hafi fundist í byggð. 31. maí 2026 kl. 7:15INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ellefu bak við lás og slá eftir nóttina fyrir líkamsárás og margvísleg lögbrot önnur Markús Þ. Þórhallsson Ellefu manns var stungið bak við lás og slá í gærkvöld og nótt. Þ / RÚV Tveir voru handteknir fyrir líkamsárás í miðborg Reykjavíkur í gærkvöld eða nótt að því er segir í morgunskeyti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu án þess að tíundað sé frekar hvað hafi átt sér stað. Þar voru jafnframt tveir handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt, sá þriðji fyrir brot á áfengislögum og stjórnandi rafhlaupahjóls var tekinn eftir að hafa ekið því á bíl. Ökumaður var handtekinn fyrir að keyra ölvaður á byggingu í Hafnarfirði og auk hans voru nokkrir handteknir fyrir ölvunarakstur víðs vegar um borgina. Ellefu gistu fangageymslur í morgun. 31. maí 2026 kl. 7:01ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Trump segir Írana hafa samþykkt að þróa ekki kjarnavopn Bandaríkjaforseti staðhæfir að íranskir ráðamenn hafi lofað að koma sér ekki upp kjarnavopnum. Fréttir herma að forsetinn hafi sent mjög ákveðið orðaðar tillögur að friðarsamkomulagi án þess að innihald þeirra sé vitað. Hann ýjar áfram að árásum. 31. maí 2026 kl. 7:00ERLENDAR FRÉTTIR Bretland Hátt settur músaveiðari sem finnst best að leggja sig Hann er orðinn köttur sex forsætisráðherra og hitt marga af fyrirmennum heims. Hann lætur sér þó alla jafna fátt um finnast og finnst best að leggja sig. Þetta er kötturinn Larry sem býr í Downingstræti 10 í Lundúnum. 31. maí 2026 kl. 6:00ERLENDAR FRÉTTIR Perú Nokkur hundruð andæfðu forsetaframboði Keiko Fujimori Nokkur hundruð mótmæltu forsetaframboði hæg