Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Oculis tekur íslenska hlutabréfamarkaðinn niður með sér

Read Full Article →

Hlutabréf í Oculis hafa hrunið um 54,25% í fyrstu viðskiptum dagsins og standa nú í 1.670 krónum. Fallið hefur tekið nær allan hlutabréfamarkaðinn með sér niður en aðalvísitalan OMXI15 hefur lækkað um 7,88%. Næst mesta lækkunin er hjá Amaroq Minerals, sem hefur lækkað um 5,63%. Þá lækkar Alvotech um 4,72%, Iceland Seafood um 4,44% og Sjóvá um 4,33%. Meðal stærri félaga markaðarins lækkar Icelandair um 4,21%, Reitir um 4,13% og Arion banki um 4,04%. Þá lækka bæði Festi og Hagar um tæp 4%. Íslandsbanki hefur lækkað um 2,45% og Kvika banki um 2,77%. Fá félög ná að synda á móti straumnum. Brim hefur hækkað um 0,57% og JBT Marel um 1,85%. Þá standa hlutabréf í Eimskipafélag Íslands, Heimar og Sýn í stað. Athygli vekur að þau félög sem lækka mest, Oculis, Amaroq Minerals og Alvotech hafa verið kölluð hin tekjulausu félög. Það er rétt í tilviki Oculis en ekki í tilviki hinna tveggja. Amaroq er með litlar tekur og Alvotech með minni tekjur en áætlanir hafa gert ráð fyrir.

Share this article