Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Kynna eigin örgjörva fyrir sjálfkeyrandi bíla

  • What: BYD unveils new semiconductor for self-driving cars
  • Impact: Advances in autonomous vehicle technology
Read Full Article →

Kínverski bílaframleiðandinn BYD kynnti nýlega örgjörva fyrir sjálfkeyrandi bíla og boðaði um leið stórfelldar fjárfestingar í þróun bílalausna. Samkvæmt fréttaflutningi WSJ hyggst fyrirtækið fjárfesta um 14,75 milljarða dala á næstu þremur árum. Nýi örgjörvinn, Xuanji A3, var kynntur á tæknidegi fyrirtækisins í Shenzhen. Um er að ræða fjögurra nanómetra hálfleiðara sem hefur þegar farið í fjöldaframleiðslu. Örgjörvinn er ætlaður fyrir sjálfkeyrandi bílatækni á stigi 3 og 4. Stig 3 gerir ökutæki kleift að annast allan akstur við tilteknar aðstæður en á stigi 4 geta bílar ekið sjálfstætt á afmörkuðum svæðum án ökumanns. Sjá einnig BYD skýtur Teslu ref fyrir rass Kynningin er hluti af áætlun BYD um að styrkja stöðu sína en kínverski rafbílamarkaðurinn hefur dregist saman og verðsamkeppni hefur sömuleiðis sett þrýsting á framlegð framleiðenda. Sérfræðingar hjá Citi telja þetta vera mikilvægt skref en greinendur benda þó á að raunveruleg frammistaða tækninnar þurfi að sanna sig í notkun áður en hægt sé að leggja endanlegt mat á samkeppnisforskot BYD.

Share this article