Uber hefur tilkynnt að fyrirtækið hyggst fjárfesta allt að 1,25 milljörðum dala í sjálfkeyrandi bílum frá rafbílaframleiðandanum Rivian. Á vef WSJ segir að fyrirtækin hafi greint frá samstarfinu í dag sem felur í sér rekstur á 10 þúsund sjálfkeyrandi bílum. Hinir umræddu bílar eru jeppar af gerðinni Rivian R2 sem verða fyrst notaðir í San Francisco og Miami. Þúsundir bíla til viðbótar gætu síðan bæst við í allt að 25 borgum í Bandaríkjunum, Kanada og Evrópu fyrir árslok 2031. Rivian, sem er með höfuðstöðvar í Kaliforníu, hefur fjárfest miklum fjármunum í sjálfkeyrandi bílatækni og hefur einnig tilkynnt að það muni bæta við svokölluðum lidar-skynjurum í bílana fyrir árslok. Sjá einnig Framleiðslutölur Rivian í samræmi við spár Fyrirtækið tapaði 3,6 milljörðum dala á síðasta ári en vonast hins vegar til að auka langtímaarðsemi með framleiðslu og sölu á R2-jeppanum. Grunngerð bílsins mun kosta í kringum 58.000 dali en ódýrari útgáfur eru einnig á teikniborðinu fyrir komandi ár.