Nýskráðir bílar í Bretlandi jukust um 7% í mái og voru samtals 160.662 samkvæmt bresku hagsmunasamtökum bílaframleiðenda, SMMT. Á vef Guardian segir að sala á rafbílum hafi vaxið hraðast og námu þeir meira en 27% af heildarmarkaðnum. Kínverski bílaframleiðandinn Chery seldi 8.200 bíla í maí undir vörumerkjunum Chery, Jaecoo og Omoda á meðan BYD seldi 5.200 bíla. Á fyrstu fimm mánuðum ársins hefur sala BYD tvöfaldast og sala Chery fjórfaldast. Sala á bílum frá MG, sem er í eigu kínverska ríkisfyrirtækisins SAIC, jókst um 13% og nam tæplega 7.500 bílum. Sala á bílum frá Leapmotor og Geely fór í 900 og 1.000 talsins en bæði vörumerkin seldu nánast enga bíla á sama tíma í fyrra. Sjá einnig JAC komið til Íslands Kínverskir bílaframleiðendur hafa flutt inn fjölda nýrra bíla inn á breska markaðinn en Bretar hafa ekki lagt á refsitolla líkt og ESB. Á sama tíma hefur eftirspurn eftir rafbílum aukist eftir að bresk stjórnvöld kynntu styrki til rafbílakaupa í júlí í fyrra, sem og vegna hækkandi eldsneytisverðs í kjölfar Íransstríðsins. Að sögn bílasamtakanna SMMT voru það einstaklingar frekar en fyrirtæki sem stóðu á bak við sterkustu söluaukninguna í maí. Aukin eftirspurn eftir rafbílum kom þó ekki aðeins kínverskum framleiðendum til góðs heldur líka bandarískum fyrirtækjum. Tesla jók til að mynda sölu sína um 45% í maí þó að heildarsala fyrirtækisins í Bretlandi hafi aðeins aukist um 3% það sem af er ári.