Innlent | mbl | 31.5.2026 | 23:30 „Svo dystópíulegt að það er næstum kómískt“ Formaður Stúdentaráðs harmar ásamt bókaverði ákvörðunina, og rithöfundur spyr sig hvort næsta skref sé að skipta grunnskólakennurum út fyrir lögregluþjóna í kennslustofum landsins. Samsett mynd/mbl.is/Sigurður Bogi/Kristinn Magnússon/Ljósmynd/Aðsend Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Gagnrýni hefur borist úr ýmsum áttum vegna ákvörðunar Landsbókasafns um að skipta bókavörðum á þriðju og fjórðu hæð bókasafnsins út fyrir öryggisverði á kvöldin og um helgar með haustinu, sem og yfir styttingu afgreiðslutíma safnsins. Formaður Stúdentaráðs harmar ákvörðunina og segir hana til marks um varhugaverða þróun í átt að enn frekari þjónustuskerðingu við stúdenta, og rithöfundur spyr sig hvort næsta skref sé að skipta grunnskólakennurum út fyrir lögregluþjóna í kennslustofum landsins. Frétt af mbl.is Skipta bókavörðum safnsins út fyrir öryggisverði Þróunin varhugaverð Katla Ólafsdóttir, formaður Stúdentaráðs, segir stúdenta harma þessa breyttu samsetningu starfsfólks á safninu. Hún sé hluti af varhugaverðri þróun þjónustuskerðingar við safngesti og enn eina birtingarmynd vanfjármögnunar háskólakerfisins. „Afstaða okkar stúdenta er sú að öll skerðing á þjónustu fyrir nemendur sé skref í ranga átt, þetta er ákveðin skerðing á þjónustu og okkur finnst þetta varhugaverð þróun að öryggisverðir komi í staðinn fyrir bókaverðina,“ segir hún í samtali við mbl.is. Samhliða þjónustuskerðingunni sé verið að stytta opnunartíma bókhlöðunnar að morgni til og yfir sumartímann, sem muni bitna á nemendum sem vinni gjarnan að rannsóknum yfir sumarið eða glöggvi sig á safnkosti þess fyrir tíma. Hefur áhyggjur af öðrum stofnunum háskólans Ákvörðunin um að skipta bókavörðum út fyrir öryggisverði kvölds og helga á þriðju og fjórðu hæð Þjóðarbókhlöðunnar var tekin í ljósi sparnaðarkröfu ríkisstjórnarinnar til safnsins upp á 3,5%, en álíka sparnaðarkrafa upp á 2,5% til 7,5% hefur verið lögð á allar stofnanir ríkisins, þar á meðal Háskóla Íslands. Katla segist sérstakar áhyggjur hafa af því hvers konar þjónustuskerðingu sparnaðarkrafa til háskólanna muni hafa í för með sér, enda séu háskólar landsins nú þegar undirfjármagnaðir. „Þessi sparnaðarkrafa nær líka til háskólanna sem eru nú þegar mun verr fjármagnaðir en háskólar á Norðurlöndunum til dæmis, og við erum undir OECD-meðaltalinu í fjármögnun opinberra háskóla, en þessi sparnaðrakrafa mun gera þeim mun erfiðara að snúa þeirri stöðu við.“ Frétt af mbl.is Jómfrúarferðir aðþrengds háskóla Eigi þegar erfitt með að sinna grunnskyldum Rithöfundurinn Kamilla Einarsdóttir hefur unnið sem bókavörður við safnið um árabil, og segir í samtali við mbl.is að það sé hræðilegt að starfsemi hins tveggja alda gamla Landsbókasafns sé látin drabbast niður með þessum hætti. „Við erum bókmenntaþjóð, og hljótum að hafa mikinn metnað fyrir því að vera með góð bókasöfn og góða rannsóknaraðstöðu fyrir fræðimenn,“ segir hún og bætir því við að auk þess sé bókasafnið stærsta háskólabókasafn landsins. Frétt af mbl.is Spyr hvort staða Landsbókasafns sæmi þjóðinni Hún segir þá stöðu sem upp er komin alvarlega fyrir háskólanema og alla þá sem er annt um fræðastörf hér á landi. „Safnið hefur nú þegar átt erfitt með að sinna því sem það á að gera lagalega, eins og alls konar í sambandi við skylduskil og svona, þannig að ef það er að koma meiri sparnaðarkrafa til handa þessari starfsemi, þá finnst mér við þurfa að spyrja okkur hvort við séum bókmenntaþjóð yfirhöfuð.“ Frétt af mbl.is Mikilvæg skylduskil eru áskorun Kamilla Einarsdóttir, fyrir miðju, segir safnið þegar eiga í erfiðleikum við að sinna lögbundum skyldum sínum. Ljósmynd/Helga Lind Spyr sig hvað sé næst Sverrir Norland, rithöfundur og bankastarfsmaður, lýsir undrun sinni yfir ákvörðuninni í Facebook-færslu þar sem hann segir ástandið „svo dystópíulegt að það er næstum kómískt“. Hann gefur lítið fyrir þá skýringu að krafa almennings um aukinn sýnileika öryggisgæslu eigi þátt í ákvörðuninni og segir hana í takt við ákveðna þróun: minnkandi áherslu á vitsmunagreind, lestur og hugsun, og hertar áherslur hvað varði vöktun og eftirlit með borgurum. Sverrir Norland virðist gefa lítið fyrir þá skýringu að krafa almennings um aukinn sýnileika öryggisgæslu eigi þátt í ákvörðuninni. mbl.is/Kristinn Magnússon „Ég næ þessu ekki. Við, sem þjóð, höfum aldrei verið ríkari en í dag, árið 2026, en samt þarf stöðugt að spara í grunnþjónustu,“ skrifar hann. „Hvert fara þessir peningar? Og hvað næst? Skipta bara grunnskólakennurum út fyrir lögregluþjóna í kennslustofum landsins?“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ég náði árangri með einlægninni „Svo dystópíulegt að það er næstum kómískt“ Sigmundur Davíð kynnir nýjan fjölskyldumeðlim Ferguson fór ófögrum orðum um Arsenal Vantreysta Bandaríkjunum en skoða þó friðartillögu Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Leggja línurnar um lágmarksbirtu í nýbyggingum Lyfta grettistaki í Gambíu Menn „passlega ánægðir og passlega óánægðir“ Skuldahengja yfir ríkjum heims Mest lesið Í gær Í vikunni Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Vara við leigubremsunni Viðstöðulaus skjálftahrina á Hellisheiði Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Flytja gríðarstór hús eftir þjóðveginum í nótt Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi „Góðverk dagsins og jafnvel ársins“ Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Myndband: Handtaka í Hveragerði Tekur undir orð Bjarna Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Timburdekkið lagt niður „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Hluthafar greiði launin Einn hlaut hátt í 12 milljónir Leyniherbergi í Alþingishúsinu Telur fánamál Snorra ekki hafa vegið þungt Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Nýjast á mbl.is » Ég náði árangri með einlægninni „Svo dystópíulegt að það er næstum kómískt“ Sigmundur Davíð kynnir nýjan fjölskyldumeðlim Ferguson fór ófögrum orðum um Arsenal Vantreysta Bandaríkjunum en skoða þó friðartillögu Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flytja gríðarstór hús eftir þjóðveginum í nótt Segir tryggingu í höfn: „Ég er í engum flýti“ Evruskýrslan án skýrrar niðurstöðu Segja stöðuna betri: „Skiljanlega er fólki brugðið“ Mest lesið Í gær Í vikunni Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Vara við leigubremsunni Viðstöðulaus skjálftahrina á Hellisheiði Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Flytja gríðarstór hús eftir þjóðveginum í nótt Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi „Góðverk dagsins og jafnvel ársins“ Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Myndband: Handtaka í Hveragerði Tekur undir orð Bjarna Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Timburdekkið lagt niður „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Hluthafar greiði launin Einn hlaut hátt í 12 milljónir Leyniherbergi í Alþingishúsinu Telur fánamál Snorra ekki hafa vegið þungt Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“