Innlent | Morgunblaðið | 1.6.2026 | 12:10 Þriggja ára bóknámið ekki fyrir alla Helgi Gíslason skólastjóri Fellaskóla, þaðan sem einungis um fjórðungur nemenda mun hafa lokið bóklegu stúdentsprófi á tilsettum tíma, segir ýmsar spurningar vakna. mbl.is/Karítas Valgerður Birna Magúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Staðan gjörbreytt á einum áratug Hætt að lesa Njálu í skólum landsins Svarar gagnrýni kennara: „Niðurstaðan stendur“ Funda um fyrirhugað símafrí Kennari segir skóla án aðgreiningar ekki virka » Fleiri tengdar fréttir Munur á hlutfalli nemenda sem útskrifast úr framhaldsskóla þremur árum eftir útskrift úr grunnskóla er talsverður milli grunnskóla innan hvers landshluta. Þetta leiðir greining Morgunblaðsins í ljós, en þann fyrirvara ber að hafa í huga að þær tölur sem hér birtast segja ekki alla söguna af námsferli nemenda þar sem mikilvægar tölur um verknám eru ekki tiltækar. Meðfylgjandi tafla sýnir fjölda nemenda sem útskrifuðust úr framhaldsskóla skólaárið 2023-2024 eftir því úr hvaða grunnskóla þeir komu ásamt fjölda þeirra sem útskrifuðust úr tíunda bekk viðkomandi skóla þremur árum fyrr. Út frá þeim tölum er hlutfall þeirra sem luku framhaldsskólanámi á tilsettum tíma, eða þremur árum, áætlað. Frétt af mbl.is Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Frétt af mbl.is Miklu munar á hlutfalli útskrifaðra milli skóla Tölfræði frá tæplega 80 skóla á landsvísu Til þess að takmarka frávik og auka marktæki eru einungis tilteknir þeir grunnskólar sem útskrifuðu 15 nemendur eða fleiri árið 2021. Hið áætlaða hlutfall er reiknað út frá gögnum úr skýrslu mennta- og barnamálaráðuneytisins um fjölda nemenda sem útskrifuðust úr framhaldsskóla skólaárið 2023-2024 eftir því úr hvaða grunnskóla þeir komu, og frá Hagstofu Íslands um fjölda grunnskólanema sem hófu nám við 10. bekk árið 2020 og útskrifuðust þar með vorið 2021. Frétt af mbl.is Öll börn eiga að fá sitt tækifæri í lífinu Vantar upp á nákvæmni talna og upplýsingar um verknám Ákveðna fyrirvara ber þó að nefna áður en gögnin eru greind til hlítar. Ekki er hægt að fullyrða að tölurnar sýni með óyggjandi hætti hve hátt hlutfall útskriftarárganga grunnskólanna árið 2021 útskrifaðist úr menntaskóla á þremur árum, enda eiga gögn skýrslu menntamálaráðuneytisins ekki endilega við um þann tiltekna nemendahóp, heldur alla nemendur sem útskrifuðust úr skólunum á árunum 2016-2021. Þá vantar stórlega upp á mikilvæg gögn er varða þann fjölda sem útskrifast úr iðnnámi og því viðbúið að tölurnar veiti ekki fullkomna heildarmynd af því hversu margir ljúka framhaldsnámi á tilsettum tíma. Þær gefa hins vegar ágætustu mynd sem völ er á af því hve margir ljúka bóklegu framhaldsskólanámi á tilsettum tíma eftir grunnskólum, enda gögnin sem eru til staðar virkilega takmörkuð, og því má lesa úr þeim ákveðið misræmi milli skóla. Frétt af mbl.is Skýrslan afhjúpar stöðuna: „Ekkert jafnræði“ Ýmsar spurningar vakni Helgi Gíslason skólastjóri Fellaskóla, þaðan sem einungis um fjórðungur nemenda mun hafa lokið bóklegu stúdentsprófi á tilsettum tíma, ítrekar í samtali við Morgunblaðið að gögnin sýni einungis hluta af heildarmyndinni, sér í lagi vegna skorts á upplýsingum um nemendur sem halda í iðnnám að grunnskólaferli loknum. Þó vakni ýmsar spurningar við yfirferð þeirra. Í Fellaskóla sé hlutfall nemenda með erlendan bakgrunn hátt og vitað sé að þeir nemendur séu líklegri til þess að falla á brott úr framhaldsskólanámi, eins og sést í tölfræði Hagstofunnar . Frétt af mbl.is Hafa áhyggjur af börnunum í núverandi fyrirkomulagi Helgi Gíslason, skólastjóri Fellaskóla. mbl.is/Sigurður Bogi Fá nemendur nægan stuðning? Álíka staða virðist uppi í öðrum skólum þar sem hlutfall nemenda af erlendum uppruna, til dæmis Álfhólsskóla í Kópavogi og Setbergsskóla í Hafnarfirði. „Og hvers vegna er það?“ spyr Helgi. „Er það vegna þess að þeir búa í tilteknum hverfum, er það bara vegna þess að þeir gengu í þennan tiltekna skóla, er það bara vegna þess að foreldrar þeirra eru ólíklegri til þess að geta stutt þá í námi vegna þess að þeir kunna kannski minna í tungumálinu, eða er það líka vegna þess að þeir fengu ekki þann stuðning sem þeir þurftu á að halda í framhaldsskólum?“ Þá vegi það þungt í skólum þar sem samsetning nemendahópsins sé fjölbreytt og nemendur glíma við ýmsar mismunandi áskoranir að skortur ríki á viðeigandi námsefni fyrir hvern og einn. Frétt af mbl.is Einn grunnskólabekkur, sautján móðurmál Vonandi upphafspunktur og hvatning Eðlilega hafa ýmsar athugasemdir vaknað yfir úrvinnslu og framsetningu gagnanna, sem eru langt í frá fullkomin, en eins og Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, benti á í samtali við mbl.is á föstudag er hann var inntur viðbragða við gagnrýni kennara á greiningu Viðskiptaráðs, eru gögn það sjaldnast. Þá standi sú niðurstaða ráðsins að hið verulega misræmi sem ríkir milli skóla sýni að framtíðarmöguleikar barna ráðist í of miklum mæli af búsetu þeirra óhögguð. Frétt af mbl.is Börnum mismunað eftir búsetu á Íslandi Frétt af mbl.is Svarar gagnrýni kennara: „Niðurstaðan stendur“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Staðan gjörbreytt á einum áratug Hætt að lesa Njálu í skólum landsins Svarar gagnrýni kennara: „Niðurstaðan stendur“ Funda um fyrirhugað símafrí Kennari segir skóla án aðgreiningar ekki virka » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Stöndum ekki í vegi fyrir honum Rússar skutu 8.150 drónum á Úkraínu Þriggja ára bóknámið ekki fyrir alla Viðskipti með Oculis vekja grunsemdir Getum ekki verið með bundið fyrir bæði augu Umræðan Þing í gíslingu Skýrsla sem segir ekki það sem okkur er sagt að hún segi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Röng túlkun ráðherra Flytja gríðarstór hús eftir þjóðveginum í nótt Hér um bil dáinn í El Grillo Segir tryggingu í höfn: „Ég er í engum flýti“ Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ „Svo dystópíulegt að það er næstum kómískt“ Skólabygging sett á söluskrá Staðan gjörbreytt á einum áratug Sigmundur Davíð kynnir nýjan fjölskyldumeðlim Röng túlkun ráðherra Hætt að lesa Njálu í skólum landsins Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Vara við leigubremsunni Viðstöðulaus skjálftahrina á Hellisheiði Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Flytja gríðarstór hús eftir þjóðveginum í nótt Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi „Góðverk dagsins og jafnvel ársins“ Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Stöndum ekki í vegi fyrir honum Rússar skutu 8.150 drónum á Úkraínu Þriggja ára bóknámið ekki fyrir alla Viðskipti með Oculis vekja grunsemdir Getum ekki verið með bundið fyrir bæði augu Umræðan Þing í gíslingu Skýrsla sem segir ekki það sem okkur er sagt að hún segi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Staðan gjörbreytt á einum áratug Fjármagnar rannsóknir á almyrkva á Íslandi Dróni lenti á kjarnorkuveri í Úkraínu Getum ekki verið með bundið fyrir bæði augu Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ „Svo dystópíulegt að það er næstum kómískt“ Skólabygging sett á söluskrá Staðan gjörbreytt á einum áratug Sigmundur Davíð kynnir nýjan fjölskyldumeðlim Röng túlkun ráðherra Hætt að lesa Njálu í skólum landsins Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Vara við leigubremsunni Viðstöðulaus skjálftahrina á Hellisheiði Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Flytja gríðarstór hús eftir þjóðveginum í nótt Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi „Góðverk dagsins og jafnvel ársins“ Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað