Innlent | mbl | 6.6.2026 | 7:00 Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Skólastjóri Rimaskóla gefur kerfum samfélagsins falleinkunn miðað við getu þeirra til þess að halda utan um skólana á umbrotatímum. mbl.is/Karítas Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Minna fé og færri styrkir þrátt fyrir aukin gæði Birtingarmynd miklu stærri vanda „Grundvallaratriði fyrir íslenska þjóð“ Hefur greinilega farið úrskeiðis löngu áður Stjórnin „gjörsamlega að taka þetta mjög alvarlega“ » Fleiri tengdar fréttir Þóranna Rósa Ólafsdóttir, skólastjóri Rimaskóla, segir nýútkomnar tölur um frammistöðu og útskriftarhlutfall nemenda á árunum 2016-2024 ekki lýsa vangetu einstakra grunnskóla, heldur vangetu samfélagsins til þess að styrkja grunnstoðir sínar í gegnum erfiða tíma. Morgunblaðið og mbl.is hafa fjallað um hlutfall útskrifaðra nemenda úr framhaldsskólum að þremur árum liðnum frá útskrift úr grunnskóla, þar sem hlutfallið er borið saman eftir því úr hvaða grunnskóla nemendurnir komu. Þóranna segir að á þessum tíma hafi ýmislegt átt sér stað í samfélaginu sem þyngt hafi róður skólanna. Stríðsástand víða um heim hafi leitt til þess að fleiri flóttamenn komu til landsins sem hafi skilað sér í fjölbreyttari, fjöltyngdari og flóknari nemendahópi. Frétt af mbl.is Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Kerfið átt erfitt Krefjandi efnahagsaðstæður hafi einnig haft áhrif á heimilin og nemendahópar orðið stærri, án þess að aukinn stuðningur til skólakerfisins hafi fylgt. Fjöldi grunnskólanemenda með erlent móðurmál hafi þannig nær tvöfaldast, bekkirnir stækkað og hegðunarvandamál orðið tíðari, en kerfið hafi átt erfitt með að fjármagna þessa þróun sem krefjist gríðarlegs utanumhalds og sérfræðiþjónustu. „Þannig að kerfi samfélagsins sem slík fá falleinkunn, miðað við það hvernig þau taka utan um skólana í þessum breytta veruleika sem við búum við,“ segir hún í samtali við mbl.is. Frétt af mbl.is Hegðunar- og agavandamál áberandi Frétt af mbl.is Þriggja ára bóknámið ekki fyrir alla Þóranna Rósa Ólafsdóttir er skólastjóri Rimaskóla. Samsett mynd/Reykjavíkurborg/mbl.is/Eggert Jóhannesson Niðurskurður samhliða fjölgun krefjandi verkefna Samhliða því hafi jafnvel orðið niðurskurður á ákveðnum sviðum, til að mynda við gerð námsgagna eins og Morgunblaðið og mbl.is hafa gert ítarleg skil. „Þar má til dæmis nefna þennan niðurskurð í námsgagnagerð, sem raunar hefur verið í gangi undanfarin 20 ár,“ segir Þóranna, en margir kennarar hafa vakið athygli á því að sá skortur komi einkum niður á getu kennara til þess að kenna börnum af erlendum uppruna, sem skilja takmarkaða íslensku en hafa einungis aðgang að eldra námsefni á íslensku. „En svo er það málið að það er ekkert sem tekur á móti þessum börnum og ekkert sem segir til um það hvernig við eigum að bregðast við því að á örfáum árum fyllast skólarnir okkar af erlendum börnum sem við þurfum að taka utan um.“ Frétt af mbl.is Námsgögn fjársvelt í áratugi Frétt af mbl.is Krefur Ragnar svara um niðurskurðinn Grípa boltana sem velferðarkerfið missir Þá þurfi skólakerfið, verandi fyrsta stigs þjónusta, að sinna börnum á meðan þau bíða viðeigandi þjónustu innan velferðarkerfisins, án þess þó að skólakerfið hafi þau úrræði og sérfræðiþjónustu sem barnið þarfnast tiltæk hjá sér. „Það eru sett alls konar verkefni á okkur í grunnskólanum sem maður veltir því fyrir sér hvort það ætti ekki að vera velferðarkerfið sem eigi að sinna,“ segir Þóranna og bætir því við að skólakerfið hafi þurft að bera ákveðinn þunga af þeim biðlistum sem myndast hafa. „Við, sem fyrsta stigs þjónusta, sitjum alltaf uppi með verkefnin og það eru bara biðlistar í hinum kerfunum.“ Frétt af mbl.is Enginn mætti frá ríkisstjórninni Frétt af mbl.is Biðlistinn bara lengist og lengist Þarf sterkari sýn á stefnu í menntamálum Þóranna gagnrýndi í aðsendri grein sinni á Vísi aðferðafræði Viðskiptaráðs við útreikning á hlutfalli þeirra nemenda sem ljúka hefðbundnu framhaldsskólanámi á tilsettum tíma eftir skóla. Þar benti hún jafnframt á að sterkari sýn þyrfti á það hvert Ísland stefndi í menntamálum. En þegar öllu er á botninn hvolft er ljóst að skortur á samanburðarhæfum gögnum um frammistöðu og brottfall nemenda úr skólum er áhyggjuefni. Frétt af mbl.is Markleysið enn einn áfellisdómur Frétt af mbl.is Engin úrræði og engin ábyrgð Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Minna fé og færri styrkir þrátt fyrir aukin gæði Birtingarmynd miklu stærri vanda „Grundvallaratriði fyrir íslenska þjóð“ Hefur greinilega farið úrskeiðis löngu áður Stjórnin „gjörsamlega að taka þetta mjög alvarlega“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Víða skúrir og hitinn gæti náð 16 stigum Tvær líkamsárásir Náðu ekki laxi á opnunardegi í Blöndu Ástæða til að hafa áhyggjur Fjárlög verði ekki hallalaus 2027 Umræðan Agi og agaleysi Þjóðaratkvæði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sakborningur sendi yfirlýsingu vegna umfjöllunar Brunakerfi stúdentagarða í gang við sturtuferðir Brotamenn með þunga dóma gætu fengið reynslulausn Ástæða til að hafa áhyggjur Mest lesið Í gær Í vikunni Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Vindorka eykur flutningskostnað Ásta verður áfram sveitarstjóri Telja að Sindri sé í haldi lögreglu Búa sig undir mikið álag á símkerfi Miklar breytingar á forystusveitinni Sérsveitaraðgerð á Akureyri Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Um 300 þegar fengið viðvörun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Um 300 þegar fengið viðvörun Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Telja að Sindri sé í haldi lögreglu Andlát: Þórir Lárusson Efni í stóran skjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu Ekki frá höfundum komið Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » Víða skúrir og hitinn gæti náð 16 stigum Tvær líkamsárásir Náðu ekki laxi á opnunardegi í Blöndu Ástæða til að hafa áhyggjur Fjárlög verði ekki hallalaus 2027 Umræðan Agi og agaleysi Þjóðaratkvæði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Maðurinn á gjörgæslu og skýrslutökur standa yfir Ekki frá höfundum komið Landsliðin flugu með íslenskum vélum Mest lesið Í gær Í vikunni Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Vindorka eykur flutningskostnað Ásta verður áfram sveitarstjóri Telja að Sindri sé í haldi lögreglu Búa sig undir mikið álag á símkerfi Miklar breytingar á forystusveitinni Sérsveitaraðgerð á Akureyri Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Um 300 þegar fengið viðvörun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Um 300 þegar fengið viðvörun Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Telja að Sindri sé í haldi lögreglu Andlát: Þórir Lárusson Efni í stóran skjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu Ekki frá höfundum komið Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna