Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Samræma viðmið til að takast á við skólaforðun

Read Full Article →

Innlent | mbl | 2.7.2026 | 10:41 Samræma viðmið til að takast á við skólaforðun Þegar barn missir úr skóla getur það verið vísbending um að skoða þurfi stöðu þess betur og bregðast við áður en vandinn verður stærri, að mati ráðuneytisins. Samsett mynd/mbl.is/Eggert Jóhannesson/Ljósmynd/Stjórnarráðið Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Greinilega mikið ósamræmi Harma ójafnræðið: Sitja ekki við sama borð Mótmæltu einkunnagjöf 2019: Nú fá 42% nemenda A Búseta og bakgrunnur hafa áhrif „Að fá A er eitthvað sem er framúrskarandi“ » Fleiri tengdar fréttir Mennta- og barnamálaráðuneytið undirbýr útgáfu landsviðmiða um skólasókn grunnskólanemenda fyrir skólaárið 2026–2027. Markmiðið er að skrá, bregðast við og koma í veg fyrir skólaforðun barna í grunnskólum á samræmdan hátt á landsvísu. „Skólasókn barna skiptir máli — ekki aðeins fyrir nám, heldur líka fyrir tengsl, vellíðan og þátttöku í skólasamfélaginu,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins sem birt hefur verið á vef Stjórnarráðsins . „Þegar barn missir úr skóla getur það verið vísbending um að skoða þurfi stöðu þess betur og bregðast við áður en vandinn verður stærri.“ Frétt af mbl.is Fjarveran áhyggjuefni Skýrari verkfæri og betri stuðningur Verkefnahópur á vegum mennta- og barnamálaráðuneytisins hefur skilað tillögum að fimm aðgerðum til að samræma skráningu og viðbrögð við ófullnægjandi skólasókn í grunnskólum. Tillögurnar byggja á menntastefnu til ársins 2030 og annarri aðgerðaáætlun menntastefnu 2025–2027. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, segir verkefnið mikilvægt skref í þá átt að börn og fjölskyldur fái skýrari og samræmdari stuðning. „Börn eiga ekki að detta á milli kerfa vegna þess að við skráum hluti með ólíkum hætti eða bregðumst misjafnlega við eftir sveitarfélögum. Með samræmdum viðmiðum fá skólar skýrari verkfæri, foreldrar meiri fyrirsjáanleika og börn betri möguleika á stuðningi á réttum tíma,“ er haft eftir Ingu í tilkynningu ráðuneytisins. Frétt af mbl.is Sum börn ekki mætt í skólann í tvö ár Samræma og staðla Íslensk sveitarfélög hafa síðustu árin mörg hver þróað sitt eigið viðbragðskerfi til að bregðast við ófullnægjandi skólasókn. Þau eru hins vegar ólík milli sveitarfélaga og hafa þau óskað eftir samræmdum viðmiðum, sem þykir mikilvægt til þess að hægt sé að öðlast betri sýn yfir skólaforðun þvert yfir landið. Aðgerðirnar fimm sem ráðlagðar eru felast í fyrsta lagi í því að samræma viðbrögð við ófullnægjandi skólasókn eins og nú hefur verið boðað. Hinar aðgerðirnar felast í því að útbúa samræmda og staðlaða viðverukóða til skráningar á skólasókn, umbreytingu og samræmingu umsókna um undanþágur og frávik frá skólasókn á Island.is, mælanlegum markmiðum og endurskoðun reglugerða og 16. kafla aðalnámskrár. Frétt af mbl.is Eflum ástríðu hjá börnum Auðveldara að sjá, greina og meta stöðuna Þessi samræmdu viðmið eru sett fram af skólasamfélaginu. Þau eru unnin í samstarfi við Grunn – Félag fræðslustjóra, Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins, Félag grunnskólakennara, Skólastjórafélag Íslands, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og Barna- og fjölskyldustofu, og verða leiðbeinandi tilmæli til grunnskóla og setja ramma um viðbrögð þegar skólasókn barns versnar. Fyrstu viðbrögð eiga að fara fram innan skólans, með samtali við barn og foreldra og leit að lausnum. Ef vandinn eykst kemur til aðkoma skólaþjónustu, félagsþjónustu, barnaverndar eða annarra sérhæfðra þjónustuaðila eftir þörfum. Frétt af mbl.is „Oftast er skólaforðun vandi foreldra“ Með samræmdri skráningu á að verða auðveldara að sjá stöðuna, greina þróun og meta hvaða úrræði skila árangri með samstilltum viðbrögðum sem miða að þörfum barnsins. Lagt er til að skólaárið 2026–2027 verði lærdómsár þar sem viðmiðin verði reynd í samstarfi við skólasamfélagið, sveitarfélög og aðra haghafa. Reynslan verði nýtt til að þróa viðmiðin áfram og undirbúa frekari umbætur. Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Greinilega mikið ósamræmi Harma ójafnræðið: Sitja ekki við sama borð Mótmæltu einkunnagjöf 2019: Nú fá 42% nemenda A Búseta og bakgrunnur hafa áhrif „Að fá A er eitthvað sem er framúrskarandi“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ein hópuppsögn Portúgalinn tilkynntur hjá Tottenham Skilja eftir tíu ára samband Krefja olíufélögin skýringa á verðhækkunum Samræma viðmið til að takast á við skólaforðun Umræðan Tár, bros og tollar Bær tækifæranna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Búseta og bakgrunnur hafa áhrif Greinilega mikið ósamræmi Stytting rýrt landsframleiðslu um 223 milljarða ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Mest lesið Í gær Í vikunni Karlmenn feimnari við skolun afturendans ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu Harma ójafnræðið: Sitja ekki við sama borð Hálfgert haustveður á vestanverðu landinu Drengurinn fundinn heill á húfi Greinilega mikið ósamræmi Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Telur lóðasamninga fullkomlega eðlilega Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Uppsagnir á Bifröst Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Nýjast á mbl.is » Ein hópuppsögn Portúgalinn tilkynntur hjá Tottenham Skilja eftir tíu ára samband Krefja olíufélögin skýringa á verðhækkunum Samræma viðmið til að takast á við skólaforðun Umræðan Tár, bros og tollar Bær tækifæranna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Ráðherra var ekki upplýstur um álitið Greinilega mikið ósamræmi Stytting rýrt landsframleiðslu um 223 milljarða Mest lesið Í gær Í vikunni Karlmenn feimnari við skolun afturendans ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu Harma ójafnræðið: Sitja ekki við sama borð Hálfgert haustveður á vestanverðu landinu Drengurinn fundinn heill á húfi Greinilega mikið ósamræmi Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Telur lóðasamninga fullkomlega eðlilega Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Uppsagnir á Bifröst Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið

Share this article