Ný skýrsla mennta- og barnamálaráðuneytisins sýnir verulegan mun á því hversu hátt hlutfall nemenda lýkur framhaldsskóla eftir því úr hvaða grunnskóla þeir koma. Í Fellaskóla höfðu aðeins 25% nemenda lokið framhaldsskóla þremur árum eftir lok grunnskóla, samanborið við 96% nemenda úr Smáraskóla. Á þetta er bent í nýrri greiningu Viðskiptaráðs . Þessi munur bendi til þess að nemendur búi við afar ólík tækifæri í grunnskólakerfinu. Að óbreyttu sé hætta á að grunnskólakerfið þróist áfram í átt að félagslega aðgreindum skólum þar sem búseta og grunnskóli hafi ráðandi áhrif á framtíðarmöguleika barna. Það dragi úr félagslegum hreyfanleika og grundvallarsjónarmiði um jafnræði í grunnskólakerfinu. Ójafnræði vegna ósamræmis í einkunnagjöf Viðskiptaráð greindi jafnframt samband milli lokaeinkunnar nemenda í stærðfræði við lok grunnskóla og aðaleinkunnar þeirra úr framhaldsskóla. Greiningin byggir á nýjum gögnum ráðuneytisins og nær til skóla þar sem umframaðsókn var eftir skólavist. Í greiningu ráðsins kemur fram að niðurstöðurnar bendi til þess að grunnskólaeinkunnir séu ekki sambærilegar milli skóla og að það skapi ójafnræði við inntöku í framhaldsskóla. Gögnin sýni annars vegar nemendur geta fengið mismunandi grunnskólaeinkunnir en síðar náð sambærilegum árangri í framhaldsskóla. Hins vegar sýni þau að nemendur með sömu grunnskólaeinkunn geti síðar náð afar misjöfnum árangri í framhaldsskóla. „Þetta bendir til þess að einkunnir endurspegli ekki sömu færni milli skóla. Þegar ósamræmdar einkunnir eru síðan notaðar til að úthluta takmörkuðum plássum í eftirsótta framhaldsskóla skapast augljóst ójafnræði. Nemendur geta þannig orðið af tækifærum vegna þess hvaða grunnskóla þeir sóttu fremur en raunverulegrar getu eða námsárangurs,“ segir í greiningunni. Samræmdir mælikvarðar og jafnræði skili árangri Viðskiptaráð fagni því að fram séu komin gögn sem varpa ljósi á stöðuna í menntakerfinu. Um langt skeið hafi skortur á gögnum takmarkað möguleika til að meta stöðu íslenskra skóla og bregðast við þeim vanda sem birtist meðal annars í lökum námsárangri í alþjóðlegum samanburði. Af gögnunum sé ljóst að þörf er á að taka upp samræmda mælikvarða að nýju við lok grunnskóla og að framhaldsskólum verði heimilt að taka mið af þeim við innritun. Með því mætti stuðla að því að nemendur séu metnir á sambærilegum forsendum, óháð því hvaða grunnskóla þeir sækja. Jafnframt sé nauðsynlegt að greina betur ástæður þess að svo mikill munur sé á námsárangri og útskriftarhlutfalli milli grunnskóla. Meginmarkmið skólakerfisins hljóti að vera að tryggja öllum börnum jöfn tækifæri, óháð búsetu eða bakgrunni. „Framtíðartækifæri barna eiga ekki að ráðast af því hvaða grunnskóla þau sóttu heldur getu þeirra og árangri. Samræmdir mælikvarðar, aukin gagnasöfnun og markvissar úrbætur eru forsenda þess að tryggja jafnræði innan menntakerfisins á ný,“ segir að lokum í greiningu Viðskiptaráðs.