Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Skipta bókavörðum safnsins út fyrir öryggisverði

Read Full Article →

Innlent | mbl | 27.5.2026 | 20:54 Skipta bókavörðum safnsins út fyrir öryggisverði Í stað bókvarða munu öryggisverðir sinna almennri vaktmennsku á þriðju og fjórðu hæð safnsins. mbl.is/Ómar Óskarsson Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Öryggisverðir munu koma í stað bókavarða á þriðju og fjórðu hæð Þjóðarbókhlöðunnar kvölds og helgar þegar hausta tekur. Landsbókavörður segir ákvörðunina tekna í ljósi sparnaðarkröfu fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar og jafnframt kröfu um bætta og sýnilegri öryggisgæslu. Í stað bókavarða, sem hingað til hafa sinnt vaktgæslu, munu öryggisverðir sinna almennri vaktmennsku á þriðju og fjórðu hæð Landsbókasafnsins að kvöldi til og um helgar, en almennur bókavörður verður áfram til staðar á annarri hæð safnsins. „Við erum með þessu að breyta samsetningu starfsfólks á kvöldin og um helgar til þess að bæta öryggi gesta og starfsmanna, að taka upp vaktmann, enda hefur komið fram almenn krafa í samfélaginu um að það ríki sýnileiki varðandi öryggi,“ segir Örn Hrafnkelsson landsbókavörður í samtali við mbl.is. Örn Hrafnkelsson hjá Landsbókasafni segir almenna kröfu um sýnileika öryggis hafa komið fram í samfélaginu. mbl.is/Ómar Óskarsson Fyrst og fremst vegna sparnaðarkröfu Slíkar breytingar segir hann almenna þróun í bókasöfnum landsins, og hefur ekki áhyggjur af því að í breyttri samsetningu starfsfólks kunni að felast þjónustuskerðing fyrir gesti bókhlöðunnar. Ákvörðunin sé þó fyrst og fremst til komin vegna 3,5% sparnaðarkröfu sem gerð var til safnsins í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar, en sparnaðarkröfur á bilinu 2%-7,5% munu eiga við um allar stofnanir ríkisins. „Sparnaðarkrafan er til dæmis 7,5% fyrir framhaldsskólana, og við erum lögð undir þessa sömu kröfu upp á 3,5%.“ Frétt af mbl.is Óbærileg ár fram undan Halda aftur af ráðningum nýrra starfsmanna Breytt samsetning starfsmanna er ekki eina hagræðingaraðgerðin sem snert hefur starfsemi Landsbókasafnsins, en fyrir áramót tilkynnti Logi Einarsson, ráðherra menningar-, nýsköpunar og háskólamála, að safnið myndi sameinast Hljóðbókasafni Íslands og Kvikmyndasafni Íslands og að sameiginlegt safn yrði til húsa í Þjóðarbókhlöðunni. Reynt verður að halda stöðum fastráðinna starfsmanna í sömu horfum að sögn Arnar þrátt fyrir að hlutastarfsmennirnir verði látnir fara. Haldið verði aftur af ráðningum nýrra starfsmanna. „En þetta verður allt saman í góðum málum,“ segir hann að lokum. Frétt af mbl.is Óánægja með sameiningu: Stórskaðar safnið Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Skipta bókavörðum safnsins út fyrir öryggisverði Segir misskilning að fyrirtæki græði á að gera upp í evru Tiger að snúa aftur? Katrín Júlíusdóttir ekki í varaformannskjör Hefur ekki horft á Aðþrengdar eiginkonur Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Dýrabær lifir enn góðu lífi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Daði um undirskriftalistann: „Mjög impónerandi“ Inga kynnir áform um einkunnabreytingu Mótvindur í ferðaþjónustu Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Óbærileg ár fram undan Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Þórarna nýr forstjóri Gripinn við að sækja Fedex-sendingu í Hafnarfirði Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Blóðugur reikningur á Tenerife Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Enginn mætti frá ríkisstjórninni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Nýjast á mbl.is » Skipta bókavörðum safnsins út fyrir öryggisverði Segir misskilning að fyrirtæki græði á að gera upp í evru Tiger að snúa aftur? Katrín Júlíusdóttir ekki í varaformannskjör Hefur ekki horft á Aðþrengdar eiginkonur Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Dýrabær lifir enn góðu lífi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki farið í aðlögun án þjóðarvilja Meiri niðurskurður en áður hefur sést Gripinn við að sækja Fedex-sendingu í Hafnarfirði Þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot á Múlaborg Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Óbærileg ár fram undan Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Þórarna nýr forstjóri Gripinn við að sækja Fedex-sendingu í Hafnarfirði Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Blóðugur reikningur á Tenerife Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Enginn mætti frá ríkisstjórninni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“

Share this article