Norðurlandamótinu í frjálsíþróttum lauk í dag. Íslendingar áttu góðu gengi að fagna. Erna Sóley Gunnarsdóttir tók gull í kúluvarpi þrátt fyrir að eiga við meiðsli að stríða. Hún gat því ekki kastað af fullum þunga. Guðni Valur Guðnason tók silfur í kringlukasti, Sindri Hrafn Friðriksson tók silfur í spjótkasti og Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir tók silfur í sleggjukasti. Hér að neðan er rætt við þau öll. Guðrún kastaði sínu næstbesta kasti frá upphafi þrátt fyrir að ná bara einu gildu kasti. Guðni Valur var ósáttur með árangurinn en horfir þó fram veginn. Sindri Hrafn býr í Anaconda-bæ í Montana-fylki og ræddi vegferð sína að EM í sumar. Kastaði með lófanum en vann samt gull Erna Sóley Gunnarsdóttir tók gull í kúluvarpi með kasti upp á 16,62 metra. Hún sleppti tveimur köstum og náði tveimur gildum en meiðsli voru að plaga hana eilítið. Kastsería Ernu: 16,40 – X – 16,62 – sleppti – X – sleppti „Það er alltaf gaman að vinna og það er ekki sjálfsagt að verða Norðurlandameistari. Þannig ég er bara mjög sátt með að taka gullið en þetta var ekki alveg árangurinn sem ég vildi í dag. En svona allt í lagi sátt með byrjunina, á fyrsta móti tímabilsins.“ Erna meiddist á puttum á æfingu og sársauki blossaði upp í miðri keppni. Hún sleppti því köstum í lokin en vann engu að síður. Þá notaði hún ekki puttana í köstum sínum, sem munar klárlega um þegar kastað er. „Þú nærð ekki að ýta neinu áfram. Þú ert eiginlega bara að ýta með lófanum. Það gerist ekkert rosalega mikið í lokin með það. Vonandi á ég eitthvað inni þegar puttarnir eru komnir í stand.“ Viðtalið við Ernu má sjá hér að neðan. Norðurlandamótinu í frjálsíþróttum lauk í dag. Erna Sóley Gunnarsdóttir tók gull í kúluvarpi þrátt fyrir að geta ekki kastað af fullum þunga. Þá tóku Guðni Valur Guðnason, Guðrún Karitas Hallgrímsdóttir og Sindri Hrafn Friðriksson silfur. „Kastserían var náttúrulega alveg stórkostlega léleg“ Guðni Valur Guðnason varð í 2. sæti í kringlukasti en hann kastaði best 61,20 metra. Hann gerði það í síðasta kasti sínu. Guðni segir seríuna ekki hafa verið góða en engu að síður jákvætt að kasta 61 metra þegar illa gengur. Guðni var afar hreinskilinn eftir keppni. „Kastserían var náttúrulega alveg stórkostlega léleg,“ sagði Guðni og sagði að síðasta kastið hefði verið minnst lélegt og hló. Kastsería Guðna : X - 47,12 - X - 57,48 - 59,16 - X - 61,20 „Það er allt í lagi að kasta rúmlega 61 metra en ég er ekki að kasta vel, ekki eins og er. En þetta er að koma. Maður er búinn að vera mikið meiddur. Maður er svolítið að leita að tilfinningunni aftur, að keppa. Maður er svolítið týndur og þetta er ekki alveg að smella. En það er mikið eftir af tímabilinu,“ sagði Guðni sem ræddi einnig hvernig hann notar þungarokk tengt kringlukasti. Viðtalið við Guðna má sjá hér. Norðurlandamótinu í frjálsíþróttum lauk í dag. Erna Sóley Gunnarsdóttir tók gull í kúluvarpi þrátt fyrir að geta ekki kastað af fullum þunga. Þá tóku Guðni Valur Guðnason, Guðrún Karitas Hallgrímsdóttir og Sindri Hrafn Friðriksson silfur. Kom alla leið frá Anaconda Sindri var nokkuð ósáttur með eigin frammistöðu en hann náði kasti upp á u.þ.b. 81 metra í upphitun. Hann náði ekki að fylgja því formi eftir inn í keppni. „Svo fór keppnin ekkert sérstaklega vel. En maður tekur silfur heim og það er allt í lagi.“ Kastsería Sindra : 75,84 - X - 74,16 - X - 75,16 - 73,70 Sindri býr í bænum Anaconda í Montana-fylki í Bandaríkjunum. Hann ræddi líf sitt þar í viðtali og fór yfir aðstöðu sína og líf. Þá er hann í baráttu um að komast inn á Evrópumótið. „Standið er mjög gott. Ég held ég hafi ekki verið í svona góðu standi í mjög ár. Ég er búinn að kasta mjög vel í byrjun tímabils. Helstu markmið er að ná lágmarki á EM, sem er 83. Það eru nokkur mót núna næstu mánuðina sem ég get farið á og kastað því markmiði.“ Hér má sjá viðtalið við Sindra. Norðurlandamótinu í frjálsíþróttum lauk í dag. Erna Sóley Gunnarsdóttir tók gull í kúluvarpi þrátt fyrir að geta ekki kastað af fullum þunga. Þá tóku Guðni Valur Guðnason, Guðrún Karitas Hallgrímsdóttir og Sindri Hrafn Friðriksson silfur. Nálægt Íslandsmetinu Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir reyndi við sitt eigið Íslandsmet í sleggjukasti og tók silfur. Hún náði sínum næstbesta árangri frá upphafi en náði einungis einu gildu kasti, þar sem hún reyndi sitt allra ítrasta. Hún kastaði 72,92 metra sem er hennar næstbesta kast sem hún hefur náð. Hún á Íslandsmetið sjálf, 73,88 metra, og var að reyna við það. Í eitt skiptið steig hún á klaufalegan hátt á línuna þegar hún var komin með gott og gilt kast, sem leit ansi vel út. Guðrún var ósátt með sjálfa sig. Hin danska Katrine Koch Jakobsen vann á 74,79 metrum sem er mótsmet. Kastsería Guðrúnar : X - X - X - 72,92 - X - X „Ég er sátt með kastið sem ég náði. Það er næstlengsta kastið sem ég hef náð. Ég var svona svolítið út um allt. Það var eina gilda kastið sem ég náði, sem er ekki alveg jákvæður hlutur. Það var gott að ná þessu kasti inn samt. Það eru köst þarna. Það þarf bara aðeins að stilla af, svo að þau séu inni í geira og ég inni í hringnum.“ Viðtalið við hana má sjá hér að neðan. Norðurlandamótinu í frjálsíþróttum lauk í dag. Erna Sóley Gunnarsdóttir tók gull í kúluvarpi þrátt fyrir að geta ekki kastað af fullum þunga. Þá tóku Guðni Valur Guðnason, Guðrún Karitas Hallgrímsdóttir og Sindri Hrafn Friðriksson silfur. Hvernig gekk hjá hinum? Eir Chang Hlésdóttir varð í 7. sæti í 200 metra hlaupi á 23,91 sekúndum. Kristófer Þorgrímsson endaði í 12. sæti í 200 metra hlaupi á 22,06 sekúndum. Irma Gunnarsdóttir varð í 4. sæti í þrístökki er hún stökk 13,13 metra. Þorleifur Einar Leifsson keppti bæði í langstökki og grindarhlaupi. Hann varð í 10. sæti í 110 m grindarhlaupi á 14,69 sekúndum og í 13. sæti í langstökki á 6,82 metrum. María Helga Högnadóttir náði sínum besta tíma frá upphafi er hún fór í fyrsta skipti undir 14 sekúndur. Hún hljóp á 13,96 og varð í 7. sæti. Niðurstaðan sex medalíur Alls kepptu 15 Íslendingar á mótinu í ár. Aðstæður voru glæsilegar í Kaupmannahöfn hjá frjálsíþróttafélaginu Spörtu. Í gær tók Hilmar Þór Jónsson silfur í sleggjukasti og Ingibjörg Sigurðardóttir tók brons. Eir Chang Hlésdóttir upplifði rússíbanadag er hún endaði að lokum í 6. sæti í 100 metra hlaupi. Meira má lesa um gærdaginn hér.