Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sló fimm Íslandsmet á einu móti

Read Full Article →

Innlent | mbl | 2.7.2026 | 21:15 Sló fimm Íslandsmet á einu móti Andrea Skúladóttir er nýr íslandsmethafi í öllum fjórum greinum fríköfunar. Ljósmynd/Aðsend Sólveig Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Andrea Skúladóttir er nýr Íslandsmethafi í fríköfun eftir frábæra frammistöðu á alþjóðlegu fríköfunarmóti sem fór fram í Sharm El-Sheikh í Egyptalandi í maí. „Þetta var fyrsta keppnin sem ég fer í á ævinni. Ég henti mér bara í djúpu laugina,“ segir Andrea en hún gerði sér lítið fyrir og setti alls fimm ný Íslandsmet á mótinu í fjórum greinum fríköfunar. Fríköfun er krefjandi íþrótt þar sem kafarar kafa án öndunarbúnaðar og þurfa því að treysta á tækni, einbeitingu og líkamlega yfirvegun. Synti niður á 50 metra dýpi Í fríköfun eru kafarar alltaf fastir með öryggislínu við band sem þeir fylgja niður á eins mikið dýpi og þeir geta. Í fyrstu greininni, CNF, synda fríkafarar niður eins langt og þeir komast og ekki er leyfilegt að snerta bandið. Þar synti Andrea niður á 23 metra dýpi. Í annarri greininni, FIM, synda fríkafarar niður og mega toga sig áfram á bandinu. Í þeirri grein, sem Andrea reyndi tvisvar við, synti hún fyrst niður á 46 metra dýpi og í seinni tilraun niður á 50 metra dýpi. Í þriðju og fjórðu greininni, CWT og CWTB, mega keppendur notast við hafmeyjusporð eða langar froskalappir. Þar synti Andrea niður á 52 metra dýpi. Andrea prófaði fyrst fríköfun fyrir um tíu árum síðan þegar hún var að ferðast um Króatíu. „Ég sá þar stelpu með stórar froskalappir kafa af stað. Ég vissi bara strax að þetta væri eitthvað sem mig langaði að prófa,“ segir Andrea. Andrea hefur kafað út um allan heim. Ljósmynd/Aðsend Fríköfun er djúp hugleiðsla Aðspurð segir Andrea það hafa verið óhugnalegt fyrst að kafa niður á svona mikið dýpi en að það venjist fljótt. „Það eru margir sem fríka út fyrst, sérstaklega því við köfum með hausinn á undan. En því meira sem þú gerir þetta því meiri ró finnur þú í þessu,“ segir hún og líkir nú ferlinu við djúpa hugleiðslu. „Það er ekkert og enginn í kringum þig. Þú heyrir ekkert nema bara hjartsláttinn þinn. Maður er bara einn með hugsunum sínum,“ segir Andrea. Ýmsar leiðir til að æfa sig Að sögn Andreu skiptir einna mestu máli að geta haldið ró sinni meðan á köfun stendur. „Því rólegri sem þú ert því betur gengur,“ segir hún en með vaxandi stressi hækkar hjartslátturinn hratt og fólk verður fyrr súrefnisþurfi. Spurð hvernig sé að æfa fyrir fríköfun segir Andrea úr nokkrum leiðum að velja. „Þú getur æft þig á landi með því að halda niðri í þér andanum og notast við svokallaðar CO2-töflur, svo getur þú æft þig í sundlaug en besta æfingin er náttúrulega að vera úti á sjó,“ segir Andrea og bætir við að maður eigi aldrei að æfa sig einsamall. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ísland - Ítalía, staðan er 75:95 Lélegur júní víða á pari við í fyrra Gylfi tryggði sigur Víkings í blálokin Sló fimm Íslandsmet á einu móti Sannfærandi Spánverjar komnir áfram Umræðan Tár, bros og tollar Bær tækifæranna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hantaveirufaraldrinum lokið Samræma viðmið til að takast á við skólaforðun Skipulagði innflutninginn í gegnum Signal Skúraveður með hagléljum og eldingu Mest lesið Í gær Í vikunni Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Ákveðnar upplýsingar komu lögreglu á sporið Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Uppsagnir á Bifröst Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Nýjast á mbl.is » Ísland - Ítalía, staðan er 75:95 Lélegur júní víða á pari við í fyrra Gylfi tryggði sigur Víkings í blálokin Sló fimm Íslandsmet á einu móti Sannfærandi Spánverjar komnir áfram Umræðan Tár, bros og tollar Bær tækifæranna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Jón Gnarr segist ekki vera Evrópusinni Samruninn hefði skapað hættu á þögulli samhæfingu Gekk á milli húsa og villti á sér heimildir Bjargað eftir átta daga leit Mest lesið Í gær Í vikunni Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Ákveðnar upplýsingar komu lögreglu á sporið Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Uppsagnir á Bifröst Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið

Share this article