Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hilmar tók silfur, Ingibjörg brons og rússibani fyrir Eir

Read Full Article →

Norðurlandamótið í frjálsíþróttum hófst í dag og þar eru 15 íslenskir keppendur skráðir til leiks. Keppt er á Österbro stadium, heimavelli frjálsíþróttafélagsins Sparta í Kaupmannahöfn, og er aðstaðan glæsileg. Íslendingar náðu tvennum verðlaunum í dag. Hilmar Örn Jónsson náði bestum árangri Íslendinga er hann tók silfur í sleggjukasti. Hilmar kastaði best 75,10 og átti stigvaxandi kastseríu. Hann hafði tækifæri á að taka fram úr Finnanum Henri Liipol undir lokin en kastaði 75 metra slétta. Liipola vann að lokum á 75,45 metrum. Hilmar á lengsta kast 78,03, sem er jafnframt Íslandssmetið, og er á leið á EM í Birmingham í sumar. „Ég var náttúrulega bara að reyna að taka Finnann þarna. Hann tók mig í 4. umferð held ég. Það munaði litlu.“ Hér má sjá viðtal við Hilmar. Norðurlandamótið í frjálsíþróttum hófst í dag. Hilmar Þór Jónsson tók silfur í sleggjukasti og Ingibjörg Sigurðardóttir tók brons. Eir Chang Hlésdóttir upplifði rússibanadag er hún endaði að lokum í 6. sæti í 100 metra hlaupi. Kastsería Hilmars : 73,37 - 74,32 - 75,09 - 75,10 - 73,16 - 75,00 Brons hjá Ingibjörgu Ingibjörg Sigurðardóttir náði bronsi í 400 metra grindarhlaupi kvenna er hún hljóp á 1:02,16. Rússibani hjá Eir Eir upplifði mikinn rússibanadag. Í undanúrslitum var hún 0,03 sekúndum frá því að tryggja sér sæti í úrslitum og var í 9. sæti. Á síðustu stundu dró keppandi sig úr leik og var Eir því kölluð í úrslitahlaupið og náði ekki að hita upp. Þrátt fyrir það vann hún sig upp um þrjú sæti og endaði í 6. sæti í úrslitum á X Í viðtali sagði Eir frá upplifun sinni af deginum. Auk þess ræddi hún undirbúning sinn fyrir mótið, en hún hefur lítið náð að æfa þar sem hún var að ljúka stúdentsprófum við MR. Eir keppir aftur á morgun í 200 metra hlaupi. Hér má viðtal við Eir. Norðurlandamótið í frjálsíþróttum hófst í dag. Hilmar Þór Jónsson tók silfur í sleggjukasti og Ingibjörg Sigurðardóttir tók brons. Eir Chang Hlésdóttir upplifði rússibanadag er hún endaði að lokum í 6. sæti í 100 metra hlaupi. Önnur úrslit Kristófer hljóp á 10,88 og varð í 7. sæti í undanúrslitum. Það er hans besta á tímabilinu hingað til. Hann keppir á morgun í 200 metra hlaupi. Karen Sif Ársælsdóttir og Hanna María Petersdóttir kepptu báðar í stangarstökki og fengu góða reynslu af keppni á slíku móti. Hanna María varð í 8. sæti á 3,30 sem er jöfnun á hennar besta á tímabilinu hingað til. Karen Sif varð í 9. sæti á 3,10 sem er hennar besta á tímabilinu hingað til. Hera Christensen varð í 5. sæti í kringlukasti en hún kastaði 55,42 metra sem er hennar besta á tímabilinu hingað til. Ívar Kristinn Jasonarson varð í 6. sæti í 400 metra grindarhlaupi karla er hann hljóp á 52,93 sekúndum. Það er hans besta á tímabilinu hingað til. Þau keppa á morgun: Irma Gunnarsdóttir - þrístökk Guðni Valur Guðnason - kringlukast Þorleifur Einar Leifsson - 110 m grindarhlaup María Helga Högnadóttir - 110 m grindarhlaup Sindri Hrafn Guðmundsson - spjótkast Erna Sóley Gunnarsdóttir - kúluvarp Eir Chang Hlésdóttir - 200 m Kristófer Þorgrímsson - 200 m Þorleifur Einar Leifsson - langstökk Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir - sleggjukast

Share this article