Líftæknifyrirtækið Regenics hefur nú undirbúning á hlutafjáraukningu fyrir skölun á framleiðslu og markaðssókn á Collex, sárameðferðarvöru úr ófrjóvguðum laxahrognum. Félagið var með fjárfestakynningu í Reykjavík í síðustu viku en þar var farið yfir stöðu félagsins, rannsóknir á vörunni, fjármögnunarþörf og áform um umsókn til bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitsins, FDA. Regenics þróar sárameðferðarvörur úr ófrjóvguðum laxahrognum og byggir aðalvara félagsins, Collex, á lífvirkum efnum til meðhöndlunar á brunasárum og langvinnum sárum. Í kynningu félagsins kom fram að Regenics hafi sprottið upp úr háskólaumhverfi í Noregi og að rannsóknir á tækninni hafi staðið yfir í um tvo áratugi. Tæknin geti nýst í ólíkum formum, meðal annars í sáraumbúðum, geli og úða, en Collex er leiðandi vara félagsins í dag. Collex-varan er ekki hefðbundinn plástur heldur hugsuð sem húðstaðgengill eða háþróaðar sáraumbúðir. Hún á að draga úr bólgu, styðja við gróanda sára, örva myndun kollagens og viðhalda röku sáraumhverfi, sem er eitt grundvallaratriða í nútímasárameðferð. Regenics er að meirihluta í eigu íslenskra fjárfesta í gegnum félagið Nordic Blue hf., sem var stofnað utan um fjárfestinguna. Nordic Blue á nú 51% hlut í Regenics en IS Haf fjárfestingar slhf., framtakssjóður í rekstri Íslandssjóða, er stærsti hluthafi Nordic Blue með rúmlega 58% hlut. Þekktir íslenskir fjárfestar hafa lagt Nordic Blue til fé á síðustu árum en ef áætlanir ganga eftir gæti Regenics orðið næsta stóra sjávarlíftækniverkefnið með íslenskri aðkomu. Áskrifendur geta lesið viðtal við forstjóra Regenics hér ásamt umfjöllun um hverjir standa að félaginu.