Framtakssjóðurinn Horn III, í rekstri Landsbréfa, tapaði 636 milljónum króna í fyrra, sem er talsverður viðsnúningur frá fyrra ári þegar hagnaður nam 758 milljónum. Eignir sjóðsins voru bókfærðar á 2.402 milljónir í árslok 2025, samanborið við 5.201 milljón árið áður. Sjóðurinn seldi á árinu 50% hlut í Líflandi til Þóris Haraldssonar, sem fyrir átti helming hlutafjár í félaginu, fyrir 2.085 milljónir króna. Í dag er eina eign sjóðsins 100% hlutur í rútusamstæðunni Pac1501. Bókfært verð eignarhlutarins var 1.736 milljónir um áramótin. Framtakssjóðurinn Horn IV, sem er sömuleiðis í rekstri Landsbréfa, hagnaðist aftur á móti um 505 milljónir króna í fyrra, sem þó er samdráttur frá fyrra ári þegar hagnaðurinn nam 2.138 milljónum króna. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .