Fagfasteignir ehf., félag í eigu Boga Þórs Siguroddssonar og Lindu Bjarkar Ólafsdóttur, eigenda Fagkaupa, hefur fest kaup á atvinnuhúsnæði að Brúarvogi 1-3 í Reykjavík af Líflandi ehf. Um er að ræða sjö þúsund fermetra verslunar-, lager- og skrifstofurými sem hýst hefur skrifstofur og vöruhús Líflands, meðal annars. Kaupverðið nemur 2,9 milljörðum króna samkvæmt kaupsamningi, sem undirritaður var í lok desember sl. Lífland keypti fasteignina af Heimum, þá Reginn, í lok árs 2015 en kaupverðið nam þá 1.310 milljónum. Tveir leigutakar eru í húsnæðinu, annars vegar bílaleigufyrirtækið Létt-Flotastjórnun ehf. og hins vegar framleiðslufyrirtækið RVX-Productions ehf. Samkvæmt kaupsamningnum mun Lífland taka óleigðan hluta húsnæðisins á leigu frá og með afhendingu samkvæmt sérstökum leigusamningi. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .