Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Fullveldið greinilega engin fyrirstaða

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 13.5.2026 | 7:00 | Uppfært 8:21 Fullveldið greinilega engin fyrirstaða Hjörtur J. Guðmundsson mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Talsvert áhugaverð grein birtist í Morgunblaðinu á dögunum eftir Pétur J. Eiríksson hagfræðing. Hófst hún á þeim orðum að þegar hann hefði gengið í Sjálfstæðisflokkinn hefði flokkurinn átt sér tvö skýr baráttumál. „Að tryggja varnir í samstarfi við Bandaríkin og lýðræðisþjóðir í Evrópu. Samvinna vestrænna lýðræðisríkja var hornsteinninn. Að berjast fyrir frjálsu markaðskerfi með afnámi hafta, tolla og annarra hindrana í viðskiptum við önnur lönd.“ Hins vegar var ekkert minnzt í greininni á varðstöðu um fullveldi lands og þjóðar sem verið hefur grundvallaratriði í stefnu Sjálfstæðisflokksins allt frá stofnun hans árið 1929. Það kom þó ekki beinlínis á óvart í ljósi þess að tilgangur greinarinnar var sá að kalla eftir því að flokkurinn tæki stefnuna á inngöngu í Evrópusambandið sem Pétur hefur lengi verið mikill talsmaður fyrir. „Hugmyndin var að frelsi einstaklinga til orðs og athafna skapaði gróskumeira samfélag en miðstýring og ríkisvald,“ sagði Pétur enn fremur og bætti við að Sjálfstæðisflokkurinn hefði þó ekki hafnað hlutverki ríkisins á meðan það gerði sem fæst sem bezt með tilvitnun í þáverandi fjármálaráðherra Friðrik Sophusson. „Með þessi leiðarljós varð Sjálfstæðisflokkurinn stærsti stjórnmálaflokkur á Íslandi,“ sagði hann enn fremur. Vel er vitanlega hægt að taka undir þessi orð Péturs þrátt fyrir fjarveru fullveldisins í skrifum hans og einmitt ekki sízt vegna þess að þau atriði sem hann nefndi hafa til viðbótar við fullveldið verið helztu ástæður þess að Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið andvígur því að Ísland gangi í Evrópusambandið. Til að mynda andstaða við miðstýringu, tolla og aðrar viðskiptahindranir og stuðningur við samstarf en ekki samruna. Vægið eftir íbúafjöldanum Fram kemur þannig í grein Péturs að Sjálfstæðisflokkurinn hefði tapað áttum í utanríkismálum með því að leggjast „með offorsi gegn þátttöku í þessu samstarfi lýðræðisþjóða“ eins og hann kallar inngöngu í Evrópusambandið. „Halda mætti að ESB sé á öndverðum kúrsi við stefnu Sjálfstæðisflokksins, sem er ekki. Það vinnur að frjálsu markaðshagkerfi, samræmingu reglna svo allir keppi með jafnræði á einum sameiginlegum markaði, stækkun markaða með viðskiptasamningum og samstarfi á sviði menningar, rannsókna, menntunar og áfram má telja. Ekkert er að sjá í stefnu þessa [sic] ESB sem er í andstöðu við stefnu Sjálfstæðisflokksins,“ sagði Pétur. Sem annars staðar var þar ekkert minnzt á fullveldið en valdið yfir flestum okkar málum færi til sambandsins og vægi Íslands innan þess færi eftirleiðis einkum eftir íbúafjölda landsins. Hins vegar þarf ekki fullveldið til svo ljóst megi vera að innganga í Evrópusambandið samrýmdist ekki stefnu Sjálfstæðisflokksins líkt og áður er komið inn á. Væri sambandið einungis fríverzlunarsvæði væri vitanlega um talsvert annað að ræða í stað markaðar sem býr við vaxandi miðstýringu og íþyngjandi regluverk innan múra tollabandalags sem ætlað er að verða innanlandsmarkaður þess evrópska sambandsríkis sem stefnt hefur verið að frá upphafi að til verði og þegar er að miklu leyti orðið að veruleika. Höfum í huga að tollabandalög eru í eðli sínu andstaðan við frjáls milliríkjaviðskipti enda tilgangur þeirra fyrst og fremst að verja framleiðslu innan þeirra fyrir utanaðkomandi samkeppni. Tollar eru í dag varla á nokkrum innfluttum vörum til Íslands fyrir utan landbúnaðarvörur ólíkt stöðunni innan sambandsins. Valdið yfir fiskinum hjá ESB Við þetta má enn fremur bæta að með inngöngu í Evrópusambandið heyrði frelsi okkar Íslendinga til þess að semja um sjálfstæða fríverzlunarsamninga sögunni til. Það vald færi til sambandsins í samræmi við sameiginlega viðskiptastefnu þess líkt og til að mynda yfir sjávarútvegsmálum okkar og orkumálum í samræmi við ákvæði Lissabon-sáttmálans, æðstu löggjafar þess. Samkvæmt honum falla til dæmis líffræðilegar auðlindir hafsins undir algert vald Evrópusambandsins sem þýðir að ríkjum þess er beinlínis óheimilt að setja lög í þeim efnum. Einungis sambandið getur það. Engin önnur auðlind er meðhöndluð með þeim hætti í sáttmálanum. Ríkin mega setja lög um aðrar auðlindir þótt það vald þeirra sé í þeim tilfellum ávallt víkjandi gagnvart valdi Evrópusambandsins. Ákveði sambandið þannig að setja lög í þeim efnum víkja lög ríkjanna. Tekið skal fyllilega undir með Pétri að rétt sé að nálgast málið með upplýstum hætti en ekki út frá trú. það er enda með upplýstum hætti sem landsfundir Sjálfstæðisflokksins hafa endurtekið komizt að þeirri niðurstöðu að hagsmunum Íslands og íslenzku þjóðarinnar sé bezt borgið sem fullvalda ríki utan Evrópusambandsins. En Pétur vill greinilega meina að mikill meirihluti landsfundarfulltrúa hafi ekki nálgast málin með þeim hætti. Það er þá á ábyrgð hans og annarra á sömu skoðun að sannfæra flokksmenn um annað. Ekki annarra. Ef grein hans er til marks um þann málflutning sem hann hefur fram að færa í þeim efnum, sem væntanlega er raunin, er skiljanlega mjög á brattann að sækja enda sem fyrr segir miklu fremur rök fyrir því að standa áfram utan sambandsins en nokkurn tímann að gangast undir yfirstjórn þess. Þyrftum að þenja út báknið Hvað fyrirhugað þjóðaratkvæði varðar segir Pétur að ein leið til sátta væri að sjá hvert viðræður um inngöngu Íslands í Evrópusambandið kunni að leiða. Væru hann og aðrir Evrópusambandssinnar á höttunum eftir einhvers konar málamiðlun ætti EES-samningurinn að vera afskaplega góð niðurstaða fyrir þá. Samningur sem fylgir þróun innri markaðar sambandsins sem þýðir að taka þarf upp sífellt meira íþyngjandi regluverk hér á landi og sæta vaxandi kröfum um framsal valds til stofnana þess. Sjálfir halda þeir því fram að með aðildinni að honum séum við þegar að mestu leyti í Evrópusambandinu þótt sá málflutningur standist að vísu enga skoðun. En þeir eru hins vegar einfaldlega ekki að leita eftir málamiðlun. Þeir verða ljóslega aldrei sáttir fyrr en Íslandi hefur verið komið inn í sambandið. Við slíka aðila er ekki hægt að ná sáttum. Varðandi umsóknarferlið sjálft liggur fyrir samkvæmt gögnum Evrópusambandsins, bæði almennt séð og um umsókn Íslands á sínum tíma, að það gengur fyrst og fremst út á fulla aðlögun að regluverki og stjórnsýslu sambandsins samhliða viðræðum um inngöngu í það. Þar kemur enn fremur fram að stjórnsýsla Íslands sé of lítil til þess að geta ráðið við veru í sambandinu og fyrir vikið þurfi að koma til mikillar „stofnanauppbyggingar“ eins og það er kallað. Sem sagt útþenslu báknsins. Þegar samningur lægi fyrir væri þetta orðinn hlutur. Yrði samningi hafnað þyrfti að vinda ofan af því sem yrði ekki auðvelt verk ef gerlegt. Um þetta yrði ekki samið og heldur ekki til dæmis um þróun Evrópusambandsins í átt að sambandsríki eða sáralítið vægi Íslands innan þess. Hvernig þetta allt samrýmdist stefnu Sjálfstæðisflokksins er vægast sagt vandséð. Hjörtur J. Guðmundsson, sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur. Heldur úti vefsíðunni www.stjornmalin.is Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » MV Hondius laðaði að forvitna ferðamenn Lét landsliðsþjálfarann heyra það: „Aumingjalegt val“ Birti mynd af Venesúela sem 51. ríki Bandaríkjanna Aukin vöruframlegð hjá Bónus Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Veikleiki í Innu: „Lítum málið mjög alvarlegum augum“ X26: Oddvitar í Reykjanesbæ mætast Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Mest lesið Í gær Í vikunni „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Mátu möguleika á björgun Lúðvíks „Allt ægilega flókið bla bla“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Hvað var hann að gera á Íslandi? Tók strætó norður og sló fjögur Íslandsmet Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Hjón sitt á hvorum listanum Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Nýjast á mbl.is » MV Hondius laðaði að forvitna ferðamenn Lét landsliðsþjálfarann heyra það: „Aumingjalegt val“ Birti mynd af Venesúela sem 51. ríki Bandaríkjanna Aukin vöruframlegð hjá Bónus Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Varar við verktöfum Forn íslensk handrit komin frá Svíþjóð X26: Oddvitar í Reykjanesbæ mætast

Share this article