Innlent | Morgunblaðið | 17.6.2026 | 8:00 Sjálfstæði er verkefni hverrar kynslóðar Guðrún Hafsteinsdóttir mbl.is/Anton Brink Setja bókamerki Á þjóðhátíðardaginn sameinumst við um það sem gerir okkur að þjóð. Við drögum fánann að húni, komum saman með fjölskyldu og vinum og minnumst þess að sjálfstæði Íslands er ekki sjálfsagður hlutur sem kom af sjálfum sér. Sjálfstæði okkar er árangur langrar baráttu og þeirrar sannfæringar að Íslendingar eiga sjálfir að ráða örlögum sínum. Þessi dagur hefur mikla þýðingu í hjörtum okkar Íslendinga. Dagurinn minnir okkur á Jón Sigurðsson og allt það fólk sem hélt fast í vonina um frjálst Ísland, jafnvel þegar sú framtíð virtist fjarlæg. Hann minnir okkur á kynslóðirnar sem börðust fyrir nýju stjórnskipulagi fyrir Ísland en einnig því að þjóðin fengi að standa á eigin fótum og taka eigin ákvarðanir. Sú arfleifð er dýrmæt og hana eigum við að varðveita. Sjálfstæði birtist í því hvernig við hugsum um landið okkar, hvernig við ræðum framtíð þess og hvernig við tökum ákvarðanir sem varða komandi kynslóðir. Við eigum að standa vörð um sjálfsákvörðunarrétt þjóðarinnar. Við Íslendingar vitum að smá þjóð getur áorkað miklu þegar hún treystir eigin dómgreind, stendur saman og hefur kjark til að velja sína eigin leið. Saga okkar sýnir það. Saga lýðveldisins er saga þjóðar sem braust úr örbirgð og varð eitt farsælasta samfélag heims. Við nýttum auðlindir lands og sjávar, menntuðum okkur og með verðmætasköpun skópum við velferð sem gerir okkur að einhverju fremsta samfélagi heims. Okkur hefur gengið vel hér á Íslandi. Það tókst ekki vegna þess að aðrir tóku ákvarðanir fyrir okkur. Það tókst vegna þess að við tókum ábyrgð á sjálfum okkur. Heimurinn er að breytast hratt og óvissa í alþjóðamálum er mikil. Nýjar áskoranir birtast á sviði öryggis, efnahagsmála, tækni, orku og umhverfis. Við eigum að eiga gott samstarf við aðrar þjóðir. Við eigum að vera virkir þátttakendur á alþjóðavettvangi, standa með vinum okkar og bandamönnum og verja þau gildi sem okkur eru kær. En gott samstarf byggist best á skýrri sjálfsmynd. Þjóð sem veit hver hún er veit líka hvernig hún á að starfa með öðrum. Við megum aldrei glata þeirri sýn að stærstu ákvarðanir um framtíð Íslands eiga að vera teknar af Íslendingum sjálfum. Í því kjarnast fullveldi landsins. Sjálfstæðisbaráttunni lauk ekki 1944 Á þjóðhátíðardaginn skulum við líka minnast að þjóð sem vill vera frjáls verður líka að vera tilbúin að ræða framtíð sína af alvöru og upplýst þjóð er betur til þess fallin að taka ákvarðanir sem eru henni sjálfri til heilla. Ég hef óbilandi trú á Íslandi. Ég hef trú á dugnaði fólksins í landinu, á fjölskyldunum, fyrirtækjunum og öllum þeim sem leggja sitt af mörkum á hverjum degi. Þar liggur styrkur þjóðarinnar. Ekki í stærð hennar heldur í fólkinu sjálfu. Á þjóðhátíðardegi er gott að minna sig á að sjálfstæðisbaráttunni lauk ekki með lýðveldisstofnuninni á Þingvöllum árið 1944, þótt þar hafi unnist stór sigur. Hvert tímabil hefur sínar áskoranir. Fyrri kynslóðir sóttu heimastjórn, fullveldi og lýðveldi. Þær reistu atvinnuvegi, skóla, samgöngur og velferðarsamfélag og færðu þjóðina úr fátækt til bjargálna, úr vanmætti til sjálfstrausts. Verkefni okkar tíma eru önnur, en kjarni þeirra er sá sami. Við þurfum að tryggja að Ísland verði áfram land frelsis, ábyrgðar og tækifæra. Við þurfum að standa vörð um fullveldi okkar í heimi þar sem ákvarðanir færast æ oftar fjær fólkinu sem þær varða. Við þurfum að gæta þess að börnin okkar erfi land þar sem hægt er að stofna heimili, skapa verðmæti, varðveita íslenska tungu, nýta auðlindir af ábyrgð og lifa við öryggi. Sjálfstæðið er verkefni hverrar kynslóðar. Nú er það okkar að varðveita það. Til hamingju með daginn, kæru Íslendingar. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Aðsend grein: Sjálfstæði er verkefni hverrar kynslóðar Corey Feldman fluttur á sjúkrahús eftir veikindi í flugi Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Krónprinsessan hefur gengist undir lungnaígræðslu Umræðan Megi Ísland ráða sínum málum Sjálfstæði er verkefni hverrar kynslóðar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Leggja til verulega hert skilyrði fyrir vindorkuver „Lögreglan þarf að vera sýnileg“ „Það myndast þarna smá vonarglæta“ Hvað vissi aðstoðarkona Epsteins? Mest lesið Í gær Í vikunni Valdimar lætur af störfum Fría gosið farið úr Ameríkufluginu „Þeir sem stöðva svona skilja ekki tæknina“ Fánar dregnir að húni um allan bæ Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Sérsveitin kölluð til eftir að maður ógnaði með hnífi Áframhaldandi vegavinna í vikunni Náðu góðri lendingu eftir ókyrrðina „Við vorum samtímis forsetar í tvær vikur“ Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Stungu af með kranabíl Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Þorgerður svarar Diljá Mist Þrír fluttir með þyrlu eftir alvarlegt umferðarslys Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar Þrír áfrýja til Hæstaréttar Kastaðist úr golfbíl eftir árekstur Lofaði konunni sinni að taka pásu Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Nýjast á mbl.is » Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Aðsend grein: Sjálfstæði er verkefni hverrar kynslóðar Corey Feldman fluttur á sjúkrahús eftir veikindi í flugi Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Krónprinsessan hefur gengist undir lungnaígræðslu Umræðan Megi Ísland ráða sínum málum Sjálfstæði er verkefni hverrar kynslóðar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skæð inflúensa olli miklu álagi „Það myndast þarna smá vonarglæta“ Ríkið áfrýjar dómi í plastbarkamálinu Ekkert sem bendir til geðræns vanda Mest lesið Í gær Í vikunni Valdimar lætur af störfum Fría gosið farið úr Ameríkufluginu „Þeir sem stöðva svona skilja ekki tæknina“ Fánar dregnir að húni um allan bæ Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Sérsveitin kölluð til eftir að maður ógnaði með hnífi Áframhaldandi vegavinna í vikunni Náðu góðri lendingu eftir ókyrrðina „Við vorum samtímis forsetar í tvær vikur“ Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Stungu af með kranabíl Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Þorgerður svarar Diljá Mist Þrír fluttir með þyrlu eftir alvarlegt umferðarslys Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar Þrír áfrýja til Hæstaréttar Kastaðist úr golfbíl eftir árekstur Lofaði konunni sinni að taka pásu Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum