Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Er ástæða til að fagna í dag?

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 17.6.2026 | 7:00 Aðsend grein: Er ástæða til að fagna í dag? Sigmundur Davíð Gunnlaugsson mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Sú hætta fylgir velmegun að smám saman gleymi fólk því hvað þurfti til að ná árangrinum sem það nýtur ávaxtanna af. Getur verið hætta á að hluti Íslendinga hafi minna sjálfstraust fyrir hönd þjóðar sinnar nú en þegar innan við 100.000 Íslendingar bjuggu ekki aðeins í harðbýlasta landi Evrópu heldur einnig því fátækasta? Þá var þjóðin sannfærð um að hún gæti og ætti að vera sjálfstæð, ráða sínum málum sjálf, treysta á sjálfa sig og taka þá áhættu sem því fylgdi. Baráttan hefst Nú eru liðin hátt 200 ár frá því að Baldvin Einarsson, Fjölnismenn og margir aðrir landar okkar hófu baráttu fyrir því að endurheimta sjálfstæði þjóðar sem taldi rúmlega 50 þúsund manns. Þjóðar sem hafði um aldir fyrst og fremst barist við að lifa af og var fámennari en á þjóðveldisöld meira en 600 sumrum áður. Jón Sigurðsson fylgdi baráttu frumkvöðlanna eftir af einstökum myndarskap og á grundvelli þess sem hann taldi satt og rétt. Hann lét ekki það sem virtist yfirburðaafl skriffinnanna og kerfiskarla í Kaupmannahöfn slá sig út af laginu og hann féll ekki fyrir gylliboðum þeirra. Dagurinn í dag Í dag þegar við fögnum afmæli Jóns og lýðveldisins hvílir skuggi yfir hátíðarhöldunum. Skuggi fálætis og vanþakklætis. Þar á ég ekki við hversu dregið hefur úr hátíðleika þjóðhátíðardagsins, þótt það sé vissulega áhyggjuefni. Víða eru hátíðarhöld vegna dagsins vart svipur hjá sjón og blikna í samanburði við það hvernig Norðmenn fagna þjóðhátíð sinni. Þjóðin sem Íslendingar yfirgáfu í því skyni að stofna annað og betra samfélag. Nei, skugginn, það mætti jafnvel kalla það okið, sem hvílir nú á fögnuði yfir fullveldi landsins er sú staðreynd að þjóðinni hafi verið stefnt í innbyrðis átök um það sem síst skyldi. Átök um hvort rétt sé að halda í trúna á að við séum best til þess fallin og fullfær um að ráða okkar málum sjálf. Eða hvort það kunni að vera meira á því að græða að treysta á leiðsögn ókjörinna erlendra embættismanna og fela þeim æðsta vald á sviði löggjafar-, framkvæmda- og dómsvalds auk æðsta valds fyrir okkar hönd í samskiptum við aðrar þjóðir. Reynslan Þetta gerist nú eftir að trúin sem forfeður okkar höfðu við erfiðari aðstæður en við getum gert okkur í hugarlund hefur sannað sig í meira en 100 ár. Eftir að Ísland fór á fáeinum áratugum úr sárri fátækt í að verða eitt almesta velmegunarland heims. Skömmu eftir að mikilvægi fullveldisréttar er ítrekað búið að sanna sig við að koma Íslandi úr vanda og tryggja stórstígar framfarir, meðal annars mesta og hraðasta efnahagslega viðsnúning sem nokkurt ríki hefur náð, alla vega í seinni tíð. Þetta gerist líka eftir að Evrópusambandið hefur hrökklast ur einni krísunni í aðra og gengur í gegnum það sem hörðustu samrunasinnar kalla jafnvel tilvistarkrísu. Allt er þetta réttlætt með umbúðamennsku eða yfirvarpi sem er svo yfirgengilega fjarstæðukennt að þeir sem beita því ættu að skammast sín. Áróðurinn Okkur er sagt að ef við göngum Evrópusambandinu á hönd getum við fengið ódýrari pítsur. „Deilið fullveldinu og fáið pizzutilboð, auka ostur fylgir og vitið þið hvað kaffið er ódýrt í Ungverjalandi? “ Órökstuddum fullyrðingum um lægra matvælaverð (matvælaverð í Svíþjóð og Finnlandi er hlutfallslega hærra m.v. Ísland nú en fyrir ESB-aðild þeirra) fylgir aldrei samanburður á launum og kaupmætti. Það sama á við um fyrirheitin um lægri vexti og ódýrara húsnæði sem ítrekað hafa verið leiðrétt að undanförnu. Fólkinu sem lítur á Íslendinga sem einfeldninga sem gleypa glerperlur og skola þeim niður með snákaolíu er bara alveg sama. Við erum að eiga við lýðskrumara með markmið. Markmiðið er að koma Íslandi í Evrópusambandið með góðu eða illu. Það skiptir þá engu máli hversu oft þeir eru leiðréttir. Gylliboðin og ósannindin eru bara endurtekin þeim mun oftar. Hjáleiðin Ekkert annað Evrópuland hefur setið uppi með stjórnvöld sem hafa svo lítið álit á eigin landsmönnum að þau telji sig geta talið þeim trú um að það að sækja um aðild að Evrópusambandinu snúist um eitthvað allt annað en viljann til að ganga í sambandið. Það snúist bara um að leita tilboða, sjá hvað sambandið bjóðist til að gefa okkur. Búnar eru til væntingar um sérstakar undanþágur fyrir Ísland, sem sé einhvers konar fyrirheitna land ESB, óháð grundvallarreglum Evrópusambandsins. Eins og götusalarnir segja: „Special price for you my friend. “ Þó fæst ekki svar við spurningunni: Hvers vegna ættum við að steypa samfélaginu í áralöng átök og raðast í dýran og tímafrekan leiðangur í von um að fá einstakar afmarkaðar undanþágur frá regluverki ESB til að geta áfram ráðið dálitlum hluta af því sem við ráðum nú þegar? Já, og gefið um leið eftir æðsta vald á sviði löggjafar-, framkvæmda- og dómsvalds til útlendinga sem vinna við að gæta hagsmuna annarra en okkar. Verk að vinna Það er sannarlega verk að vinna í íslenska lýðveldinu. En verkefnin eru ekkert annað en auðveld í samanburði við þau sem forfeður okkar þurftu að leysa til að byggja upp þá stöðu sem við njótum nú. Stoðirnar eru svo traustar að heilbrigð skynsemi og rökréttar ákvarðanir teknar út frá stöðu og hagsmunum Íslands geta leyst öll mál, verðbólgu, vexti, húsnæðismál, ríkisrekstur, kjaramál og hvaða verkefni sem við stöndum frammi fyrir. Svo framarlega sem við gröfum ekki undan stoðunum. Sæti við borðið Svo er það frasinn um „sæti við borðið “ . Við höfum nú þegar sæti við borðið um allan heim á okkar forsendum. En það sem mestu máli skiptir er að við Íslendingar höfum sæti við eigið borð þar sem við tökum ákvarðanir um eigin mál. Sex sæti á Evrópuþinginu (og ódýrari geitaostur) eru engin réttlæting fyrir því að gefa eftir full yfirráð okkar mála (og íslenskan landbúnað). Ef Ísland yrði vélað inn í ESB fengjum við sex sæti á Evrópuþinginu sem þá yrði væntanlega skipað hátt í 800 fulltrúum með aðild fátæku þjóðanna sem okkur yrði ætlað að styrkja. Evrópuþingið er nánast valdalaust og má ekki einu sinni leggja fram frumvörp. Það skal afgreiða það sem kemur frá embættismönnunum í framkvæmdastjórninni. Á þjóðfundinum árið 1851 bauðst Íslendingum að „deila fullveldinu “ með Dönum og fá fyrir vikið sex sæti á danska þinginu sem þá var valdameira en ESB þingið nú. Svar fulltrúa Íslands með orðum Jóns Sigurðssonar var: „Vér mótmælum allir. “ Í dag er sannarlega ástæða til að fagna afmæli Jóns og sjálfstæði Íslands. Það verður ekki síður ástæða til að fagna í lok ágúst þegar Íslendingar verða vonandi búnir að sjá í gegnum blekkingarleikinn og mótmæla (næstum) allir. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Lítið sést til sólar á þjóðhátíðardaginn Baulað á Katrínu og börnin í skrúðgöngu Sérsveitin kölluð til eftir að maður ógnaði með hnífi „Rosalega auðvelt að vera bara sáttur“ Aðsend grein: Er ástæða til að fagna í dag? Umræðan Megi Ísland ráða sínum málum Sjálfstæði er verkefni hverrar kynslóðar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Náðu góðri lendingu eftir ókyrrðina Ekkert sem bendir til geðræns vanda Norðmenn fjölga sprengjuathvörfum Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Mest lesið Í gær Í vikunni Valdimar lætur af störfum Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Fánar dregnir að húni um allan bæ „Þeir sem stöðva svona skilja ekki tæknina“ Áframhaldandi vegavinna í vikunni Náðu góðri lendingu eftir ókyrrðina „Við vorum samtímis forsetar í tvær vikur“ Myndir: Víkíngahátíðin hafin í 29. skiptið Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Steypireyðar snúa aftur til Skjálfandaflóa Stungu af með kranabíl Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Þorgerður svarar Diljá Mist Þrír fluttir með þyrlu eftir alvarlegt umferðarslys Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar Þrír áfrýja til Hæstaréttar Kastaðist úr golfbíl eftir árekstur Lofaði konunni sinni að taka pásu Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Nýjast á mbl.is » Lítið sést til sólar á þjóðhátíðardaginn Baulað á Katrínu og börnin í skrúðgöngu Sérsveitin kölluð til eftir að maður ógnaði með hnífi „Rosalega auðvelt að vera bara sáttur“ Aðsend grein: Er ástæða til að fagna í dag? Umræðan Megi Ísland ráða sínum málum Sjálfstæði er verkefni hverrar kynslóðar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skæð inflúensa olli miklu álagi Ríkið áfrýjar dómi í plastbarkamálinu Tveir í gæsluvarðhald vegna árásar í Reykjanesbæ Segir framkvæmdir hefjast í haust og ljúka 2030 Mest lesið Í gær Í vikunni Valdimar lætur af störfum Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Fánar dregnir að húni um allan bæ „Þeir sem stöðva svona skilja ekki tæknina“ Áframhaldandi vegavinna í vikunni Náðu góðri lendingu eftir ókyrrðina „Við vorum samtímis forsetar í tvær vikur“ Myndir: Víkíngahátíðin hafin í 29. skiptið Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbri

Share this article