Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ásgrímur Halldórsson SF á leið til Íslands

Read Full Article →

Ásgrímur Halldórsson SF, nýtt uppsjávarskip Skinney-Þinganess á Hornafirði, leggur úr höfn í Skagen á Jótlandi upp úr hádegi í dag í jómfrúarsiglingu sína til Íslands. Fulltrúar Skinney-Þinganess tóku formlega við skipinu í gær af Karstensens skipasmíðastöðinni. Ráðgert er að skipið komi til Hafnar í Hornafirði á laugardag. Þann dag er stefnt að húllumhæi fyrir gesti og gangandi sem verður boðið að skoða skipið. Úr brúnni á nýja skipinu. Myndir/Karstensens Samið var um smíði á nýju uppsjávarskipi fyrir Skinney-Þinganes við Karstensens skipasmíðastöðina í Skagen í desember 2021 og um svipað leyti samdi Gjögur um smíði á nýjum Hákoni ÞH, nákvæmlega eins systurskipi. Fyrirtækin höfðu skipti á samningum þannig að Gjögur fékk fyrra skipið sem kom til landsins í október 2024. Skrokkur skipsins var smíðaður hjá skipasmíðastöð Karstensens í Póllandi og hann síðan dreginn til Danmerkur þar sem fullnaðarfrágangur fór fram. Skipið er 75,4 metrar á lengd og 16,5 metrar á breidd. RSW tankarnir eru 2.425 rúmmetrar. Skip Skinneyjar-Þinganess verður þannig hannað að djúpristan verði sem minnsta eða um 6,5 metrar sem kemur til vegna sérstakra aðstæðna við innsiglinguna til Hafnar í Hornafirði.

Share this article